Þrjár systur halda tónleika Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 26. júní 2015 12:30 Systurnar þrjár flytja ýmiss konar lög í kvöld og reyna meðal annars fyrir sér í rappinu. mynd/bjarney lúðvíksdóttir „
Það má eiginlega segja að þetta séu tónleikar, uppistand og dass af fróðleik,“ segir Þórunn Lárusdóttir sem ásamt systrum sínum Dísellu og Ingibjörgu heldur tónleika í Björtuloftum í Hörpu í kvöld. Systurnar syngja ýmis íslensk lög og fara yfir tónlistarsögu Íslands og brjóta dagskrána upp með gamanmáli en dagskráin fer fram á ensku og eru tónleikarnir upphaflega ætlaðir ferðamönnum en Þórunn segir þá Íslendinga sem mættu hafa haft gaman af. „Við erum að syngja þekkt íslensk lög sem tengjast okkur. Lögin eru frá öllum tímabilum tónlistarsögunnar á Íslandi og svo tengjum við lögin við okkur persónulega. Margir af okkar forfeðrum eru mjög merkilegir í tónlistarsögunni,“ segir hún hress. Þórunn segir tónlistina sem flutt verður vera fjölbreytta, allt frá sálmum og yfir í rapp. „Dóttir Ingibjargar systur er meðlimur í Reykjavíkurdætrum og okkur þótti við hæfi af því að við förum í gegnum forfeður okkar, að taka lag úr framtíðinni líka,“ segir Þórunn hress en dóttir Ingibjargar er Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir. „Við röppum allar og það er sjúklega fyndið,“ segir hún skellihlæjandi og segir rappið bæði frelsandi og skemmtilegt. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Þórunn rappar en segir að þetta sé í fyrsta sinn, svo að hún viti til, sem systur hennar geri það. Tónleikarnir fara fram klukkan átta í Björtuloftum í Hörpu í kvöld og verða einnig tónleikar á sunnudag sem hefjast á sama tíma.
Mest lesið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Gullmoli í Giljalandi Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ Sjá meira