Vinaböndin Mammút og Samaris í eina sæng Guðrún Ansnes skrifar 26. júní 2015 09:00 Má gera ráð fyrir að listagyðjan fái fáar pásurnar þegar blásið verður til veislunnar. mynd/aðsend „
Það er nefnilega dæmigert að stilla okkur upp sem keppinautum, en við erum sannkölluð vinabönd, þar sem við höfum fylgst að í mörg ár,“ segir Jófríður Ákadóttir, söngkona rafpoppsveitarinnar Samaris, en bandið hefur ákveðið í slagtogi við Mammút að blása til risa tónleikagjörnings í næsta mánuði. Munu böndin meðal annars flytja lög hvort annars. „Bæði böndin eru á plötusamningi hjá erlendum fyrirtækjum, við hjá One Litle Indian og Mammút hjá Bella Union, og þar ytra er mikil samkeppni, sem við hérna á Íslandi þekkjum ekki,“ útskýrir Jófríður og bendir á að landslag tónlistarmanna á Íslandi sé um margt ólíkt því sem gerist annars staðar. Hér á landi leggi sig allir fram við að aðstoða eftir fremsta megni. „Okkur langaði að búa til viðburð og fagna þessu svolítið, böndin hafa fylgst að í gegnum tíðina, svo nú fannst okkur tími til kominn að taka málin í okkar hendur. Sumsé ekki vera alltaf þátttakendur, sem er vissulega gaman líka, en nú gerum við þetta á okkar hátt. Þannig er þetta stuðningur Mammút við Samaris í verki og vitaskuld öfugt.“ Segir Jófríður að tónleikagestir geti átt von á miklu sjónarspili. „Við erum mikið myndlistarfólk og höfum gaman af að framkvæma gjörninga, svo við ætlum að teygja okkur svolítið í allar áttir með það.“
Mest lesið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Gullmoli í Giljalandi Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ Sjá meira