Menning

Eimar niður ákveðið þjóðfélagsástand

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Það verður alltaf að vera ein nótt á milli uppsetningar og sýningar svo myrkrið fái að seytla inn,“ segir Haraldur.
„Það verður alltaf að vera ein nótt á milli uppsetningar og sýningar svo myrkrið fái að seytla inn,“ segir Haraldur. Vísir/Stefán
„Ég lýk við að setja Kjör upp í kvöld,“ sagði listamaðurinn Haraldur Jónsson síðdegis í gær og átti þar við sýningu sem hann opnar í Týsgalleríi klukkan 17 í dag.

„Það verður alltaf að vera ein nótt á milli uppsetningar og sýningar svo myrkrið fái að seytla inn,“ segir Haraldur íbygginn og bætir við: „Það er nauðsynleg kyrrð sem fylgir því og líka ákveðin hleðsla því sýningin fær að þreifa á myrkrinu.“

Haraldur kveðst vinna mikið út frá hversdeginum.

„Í þessu minnsta galleríi höfuðborgarsvæðisins er ég að búa til kringumstæður – eima niður ákveðið þjóðfélagsástand sem við getum upplifað í dag en er um leið tímalaust. Ég reyni að vega salt þar á milli,“ útskýrir hann.

Haraldur segir líka Kjör vera á vissan hátt líkamlega sýningu því áhorfandinn taki þátt í henni og frammi liggi spjöld í boxi og þau spjöld geti fólk tekið með sér.

„Sýningin verður ekki virk fyrr en áhorfandinn stígur inn í rýmið því þó að það sé lítið þarf hann að gefa sér tóm til að fara í smá ferðalag,“ segir listamaðurinn og heldur áfram að skapa þá stemningu sem hann býður upp á í Týsgalleríi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.