Innlent

Fjölmenni við jarðarför Fidda

Jakob Bjarnar skrifar
Fiddi kveður. Hafnarfjarðarkirkja var troðfull þegar sonur Hafnarfjarðar, Friðrik Oddsson, var jarðsunginn.
Fiddi kveður. Hafnarfjarðarkirkja var troðfull þegar sonur Hafnarfjarðar, Friðrik Oddsson, var jarðsunginn. visir/stefán/bergur ólafsson
Hafnfirðingar fjölmenntu þegar Friðrik Oddsson – Fiddi – var jarðsunginn. Hafnarfjarðarkirkja var troðfull sem og tengibyggingin, hvar athöfninni var varpað á skjá. Einnig var stór hópur í Kaplakrika, en þar var sent út frá jarðarförinni og stendur erfidrykkja yfir þar nú. Fiddi átti fjölmarga vini í Vestmannaeyjum, en hann var fastur gestur á Þjóðhátíð í Eyjum, og fylgdist hópur þar með jarðarförinni einnig. Vísir sendi beint frá útförinni og fylgdist fjöldi manna með þeirri útsendingu.

Fjölmenni var í kirkjunni og fáni FH í öndvegi, en Fiddi var gegnheill FH-ingur, alla tíð.visir/stefán
Handboltakappinn Logi Geirsson hafði veg og vanda að útförinni sem var glæsileg. FH-ingar stóðu heiðursvörð þegar kistan var borin úr kirkjunni en handboltahetjan Aron Pálmarsson hafði flogið sérstaklega til landsins og fengið frí frá liði sínu Vesprem í Ungverjalandi til að vera einn kistubera.

Söngvararnir Páll Rósinkranz, Bubbi Morthens og Hreiðar Örn Kristjánsson sungu lög sem Fiddi sjálfur hafði valið, en hann vissi að hverju stefndi.

Aron Pálmarsson flaug gagngert til landsins til að bera vin sinn til grafar.visir/stefán
Prestarnir Einar Eyjólfsson og Sigríður Kristín Helgadóttir jarðsungu og nefndu þau að Fiddi hafi verið ekta Gaflari og stoltur sem slíkur. Þó tilefnið hafi verið sorglegt var hlegið í Hafnarfjarðarkirkju, og var það í anda þess sem jarðsunginn var, en Fiddi var þekktur fyrir að vera ávallt með spaugsyrði á vörum. Í minningarorðum var meðal annars rifjuð upp saga sem Fiddi sagði stundum af sér sjálfur, sú að hann, hrakfallabálkur sem hann var, hafi lent í bílslysi og töldu margir Fidda af. Einn vinur Fidda hringdi í lögregluna til að fá úr þessu skorið; hvort rétt væri að Fiddi hafi farist í slysinu? „Nei, því miður,“ svaraði þá varðstjórinn.

Séra Einar og Séra Sigríður Kristin nefndu það jafnframt í minningarorðum sínum að fáir ef nokkrir hefðu sett eins mikinn svip á bæinn og Fiddi; sem var afar ræðinn og gaf sig á tal við unga sem aldna. Hafnarfjörður verður ekki samur.

FH-ingar stóðu heiðursvörð þá er kistan var borin úr kirkjunni.visir/stefán

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×