Menning

Ó, helga nótt og fleiri perlur jólatónlistar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Schola cantorum sér um hátíðastemningu á hádegistónleikunum.
Schola cantorum sér um hátíðastemningu á hádegistónleikunum.
Fjölbreytt aðventu- og jólatónlist verður flutt á hádegistónleikum kórsins Schola cantorum í Hallgrímskirkju á morgun, 18. desember. Lög eins og Ó, helga nótt, Wexford Carol, Nóttin var sú ágæt ein, Það aldin út er sprungið, Lux aurumque eftir Whitacer, Josef and the Angel eftir Hafliða Hallgrímsson og fleiri perlur.

Einsöngvarar úr röðum kórsins verða Fjölnir Ólafsson bassi, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran og Ragnheiður Sara Grímsdóttir sópran. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Mjög annasömu ári er að ljúka hjá kórnum. Auk þess að hafa lokið upptökum á geisladiski fyrir erlendan markað hefur kórinn komið fram á um tuttugu tónleikum, meðal annars á vikulegum hádegistónleikum sínum í Hallgrímskirkju í sumar, á Kirkjulistahátíð í ágúst og Culture Scapes í Sviss í nóvember.

Þetta eru síðustu aðventutónleikar Schola cantorum á Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju og tilvalið að njóta fallegrar tónlistar í hátíðlegu umhverfi. Tónleikarnir standa í um það bil hálfa klukkustund.

Miðasala er á midi.is og við innganginn. Miðaverð er 2.500 krónur en námsmenn og listvinir kirkjunnar greiða hálft gjald.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.