Erlent

Georg Bretaprins orðinn tveggja ára

Atli Ísleifsson skrifar
Feðgar á góðri stund.
Feðgar á góðri stund. Mynd/Mario Testino
Georg Bretaprins heldur upp á tveggja ára afmæli sitt í dag. Hann er eldra barn Katrínar hertogaynju af Cambridge og Vilhjálms Bretaprins, en þau eignuðust Karlottu prinsessu þann 2. maí síðastliðinn.

Breska konungshöllin birti mynd af Georgi og Vilhjálmi í tilefni afmælisins á Facebook-síðu sinni í gær.

Segir að Mario Testino hafi tekið myndina eftir skírnarathöfn Karlottu sunnudaginn 5. júlí síðastliðinn.

Look who's turning two tomorrow! #HappyBirthdayPrinceGeorge This photograph, released today ahead of Prince George's...

Posted by The British Monarchy on Tuesday, 21 July 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×