Erlent

Flugvallastarfsmenn leggja niður störf

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/epa
Flugvallastarfsmenn í New York leggja niður störf klukkan tíu í kvöld að staðartíma, náist ekki samningar um laun þeirra. Ríflega tólf hundruð starfsmenn hóta verkfalli, sem kemur að öllum líkindum til með að hafa áhrif á þúsundir farþega.

Verkalýðsfélag starfsmannanna segir það skjóta skökku við að starfsmennirnir nái vart endum saman á meðan hagnaður flugfélaganna sé í sögulegu hámarki.

Um er að ræða starfsfólk á flugvöllunum LaGuardia og JFK.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×