Lífið

Fyrrum meðlimir Top Gear með nýjan þátt sem gæti heitið House of Cars

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá þríeykið á góðri stundu.
Hér má sjá þríeykið á góðri stundu.
Talið er að Jeremy Clarkson, James May og Richard Hammond séu að fara yfir á ITV-sjónvarpsstöðina og að þeir ætli sér að nefna nýjan þátt House of Cars.

Nafnið er augljós vísun í hina vinsælu þætti House of Cards, með Kevin Spacey í aðalhlutverki. Þeir hafa verið að gera það gott á Netflix.

Fjölmiðlar í Bretlandi hafa margir velt því fyrir sér hvað verði um hina vinsælu þáttaröð Top Gear, eftir að Jeremy Clarkson var rekinn fyrir að veitast að einum framleiðanda þáttanna. Top Gear, sem var á dagskrá BBC - breska ríkisútvarpsins - naut vinsælda um allan heim. Einstakt samband þremenninganna sem stýrðu þáttunum skilaði sér vel til áhorfenda.

Nafnið Top Gear er í eigu breska ríkissjónvarpsins og þurfa þeir Clarkson, May og Hammond að finna sér nýtt nafn á þáttinn sinn. Aðstandendur BBC hafa gætt þess að nafn þáttarins sé ekki notað annars staðar, til að mynda mátti þríeykið ekki nota það þegar það kom fram opinberlega á skemmtunum. 

Á vefmiðli breska dagsblaðsins Mirror kemur fram að nafnið House of Cars þyki vænlegur kostur sem titill á nýju þættina. Í það minnsta er ljóst að nafnið muni vekja athygli. 

Í umfjöllun breskra fjölmiðla kemur þó fram að einhverjir í kringum þremenningana hafi áhyggjur af ritstjórnarlegu frelsi þeirra, ákveði þeir að fara yfir á ITV. Þykir ljóst að Clarkson vilji geta sagt nákvæmlega það sem hann vill segja hverju sinni. Menn hafa af því áhyggjur að Clarkson, May og Hammond fái ekki leyfi til þess að vera jafn afdráttarlausir í skoðunum sínum á tilteknum bílategundum, sem framleiddar eru af fyrirtækjum sem kaupa auglýsingar hjá stöðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×