Erlent

Sextíu látnir í hitabylgju

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/epa
Yfir sextíu manns hafa látist í Egyptalandi í liðinni viku vegna hitabylgju sem gengur yfir landið. Mörg hundruð manns hafa verið flutt á sjúkrahús vegna hitans og ríkir mikið neyðarástand á sjúkrahúsum landsins. Flest hinna látnu eru eldri borgarar eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma, og er dánarorsökin nær alltaf hitaslag.

Hitinn hefur á undanförnum vikum verið rúmlega fjörutíu gráður, en fór hæst í fjörutíu og sjö gráður. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×