Lífið

Grínistar úr Mið-Íslandi á heimavelli

Freyr Bjarnason skrifar
Félagarnir í grínhópnum vinsæla verða með glænýja brandara í Leikhúskjallaranum.
Félagarnir í grínhópnum vinsæla verða með glænýja brandara í Leikhúskjallaranum. Mynd/Ernir Eyjólfsson
„Þetta er það skemmtilegasta sem við gerum í uppistandinu, þessar sýningar í Leikhúskjallaranum,“ segir grínistinn Björn Bragi Arnarson úr Mið-Íslandi. „Þarna erum við algjörlega á heimavelli. Við höfum gert mikið af því að skemmta hér og þar á alls konar viðburðum en í kjallaranum erum við upp á okkar allra besta.“

Grínhópurinn vinsæli snýr aftur í Leikhúskjallarann með sína fyrstu sýningu á árinu í kvöld. Síðasta sýning Mið-Íslands í kjallaranum sló í gegn og var sýnd yfir sjötíu sinnum í fyrravetur. Um fimmtán þúsund áhorfendur létu sjá sig.

Aðspurður segist Björn Bragi ætla að mæta með gítarinn með sér upp á svið í þetta sinn en nokkur ár eru liðin síðan hann gerði það síðast. Hann er með brakandi ferskt grín í pokahorninu, eins og félagar hans Ari Eldjárn, Dóri DNA og Jóhann Alfreð, og hlakkar mikið til að flytja það á sviði. „Ég held að við séum að endurnýja efnið okkar mun hraðar en til dæmis kollegar okkar erlendis, sem eru á stærri markaði. Við viljum bjóða upp á nýja sýningu og efnið okkar núna er alveg glænýtt,“ segir hann um nýju brandarana.

„Í nóvember vorum við með tvær tilraunasýningar til að prófa nýtt efni á áhorfendum og það var svaka stemning, sem gaf góð fyrirheit um það sem koma skal.“

Grínið er margs konar og ættu allir að fá eitthvað fyrir sinn snúð. „Umfjöllunarefnið fer eftir því hvað menn eru að fást við í lífinu. Til dæmis eiga Ari og Dóri börn en við Jói ekki. Við reynum að taka fyrir íslenska samfélagið en svo erum við mikið að gera grín að okkur sjálfum.“

Bergur Ebbi, einn af stofnendum Mið-Íslands, er í námi í Kanada en vonir standa til að hann stígi á svið á nokkrum sýningum í vetur. Í hans stað munu skiptast á að vera með strákunum þau Anna Svava Knútsdóttir, Saga Garðarsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson. „Við söknum auðvitað Bergs Ebba mikið. Hann skilur eftir sig stórt skarð en ég held að við hefðum ekki getað fengi betri staðgengla,“ segir Björn Bragi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×