Menning

Bjartsýnar konur ætla að syngja inn vorið á morgun

Gunnþóra Gunnardóttir skrifar
Þessi mynd var tekin á síðustu jólatónleikum. Lilja er við píanóið í rauðum kjól.
Þessi mynd var tekin á síðustu jólatónleikum. Lilja er við píanóið í rauðum kjól.
Þrátt fyrir byl og ófærð þessa dagana heldur kvennakórinn Hekla sína árlegu vortónleika í Laugarneskirkju á morgun klukkan 16.

„Þetta lýsir konunum í kórnum vel, þær eru svo bjartsýnar og kraftmiklar og það er svo mikil gleði í hópnum,“ segir stjórnandinn Lilja Eggertsdóttir.

Á efnisskránni hjá Heklunum er bæði innlend og erlend tónlist, að sögn Lilju.

„Þemað er stríðsáratónlist, óperukórar úr Sardasfurstynjunni, lög úr óperettum og svo blanda af gömlum og nýjum dægurflugum, að ógleymdum nokkrum þjóðlögum, írskum, sænskum og enskum,“ lýsir hún.

Lilja leikur sjálf á píanó og auk hennar spila Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir fiðluleikari og Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari.

Aðgangseyrir á tónleikana er 2.000 krónur, bæði við innganginn og í forsölu hjá kórkonum (heklurnar@gmail.com) en frítt er fyrir börn yngri en 16 ára.

Fólk er beðið að athuga að ekki er tekið við greiðslukortum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×