Lífið

Dagur heilags Patreks haldinn hátíðlegur á Íslandi

Píramídarnir í Gisa upplýstir í tilefni dagsins 2012.
Píramídarnir í Gisa upplýstir í tilefni dagsins 2012.
Heimurinn verður grænn þann 17. mars næstkomandi en þá er gert ráð fyrir að yfir 70 milljónir manna muni fagna einum af verndardýrlingum Írlands, heilögum Patreki.

Dagur heilags Patreks eða St. Patrick's Day verður haldinn hátíðlegur í sex heimsálfum og í flestum stærstu borgum heims. Má þar nefna Dyflinni, Dubaí, Líma, Sydney, Stokkhólmi og Moskvu. Að auki fer mikið fyrir fögnuðinum í bandarískum borgum á austurströndinni þar sem margir íbúar eiga ættir sínar að rekja til Írlands. Deginum er gjarnan fagnað með skrúðgöngum eða með því að lita þekkt kennileiti græn.

Skakki turninn í Pisa upplýstur í tilefni dagsins 2013.
Heilagur Patrekur fæddist á Bretlandi en var numinn á brott af írskum sjóræningjum. Heilagur Patrekur hét þó ekki Patrekur heldur Maewyn Succat. Hann lærði til prests og stundaði trúboð á Írlandi og segir sagan að hann hafi útrýmt snákum þar í landi. Hinn græni músasmári (shamrock) er tákn Írlands og er það rakið til þess þegar heilagur Patrekur kynnti konung Írlands fyrir smáranum sem tákn um hina heilögu þrenningu í kristinni trú.

Dagur heilags Patreks er haldinn 17. mars ár hvert. Þar sem 17. mars fellur á þriðjudag í ár verður forskot tekið á sæluna hér á landi og haldið upp á daginn næstkomandi föstudag og laugardag. Hefð er fyrir því að hlusta á írska pöbbatónlist, fá sér freyðandi Guinness af krana og samgleðjast írskum frændum okkar. Meðal staða þar sem hægt er að halda upp á daginn eru English Pub, Lebowski Bar, Dubliner's, Celtic Cross, American Bar, Ölsmiðjan og svo Irish Pub í Hafnarfirði. 

Til þess að fagna þessari írsku hátíð er hér hjálpartexti með írskum frösum sem þú getur notað:

  •  Pionta GUINNESS, le do thoil. (Pijun-tah GUINNESS, leh duh huh-il) Glas af Guinness, takk fyrir.
  •  Lá Fhéile Pádraig Sona Duit! (LAw Ale-yeh Pawd-rig Sunna Ditch) Gleðilegan St. Patrick's Day!
  •  Ádha na nÉreannach. (Awe nah Nay-ron-okh) Írska lukkan.
  • Sláinte! (Sloyn-chec) Skál!
  • Go raibh maith agat. (Guh rev mah a-gut) Takk fyrir.
  • Tá fáilte romhat. (Taw foyle-chec roh-ot) Minnsta mál.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×