Gengið á fimmtán stöðum víðsvegar um landið Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 9. maí 2015 15:30 Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum saman, hvetur alla til að klæða sig eftir veðri og ganga með félaginu á morgun. Vísir/Pjetur
Styrktarfélagið Göngum saman efnir til árlegrar vorgöngu á morgun, mæðradaginn, en gengið verður á fimmtán stöðum um land allt. „Þetta er í áttunda skipti sem svona stór ganga er haldin um land allt,“ segir Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum saman, glöð í bragði. Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini með frjálsum framlögum og hægt verður að kaupa varning frá Göngum saman, meðal annars boli og höfuðklúta hannaða af Guðmundi Jörundssyni og fjölnota innkaupapoka sem hannaðir eru af Sigurborgu Stefánsdóttur. „Við söfnum fé í rannsóknir á brjóstakrabbameini og göngurnar eru bæði notaðar til þess að vekja athygli á málstaðnum og líka bara á göngum sem leið til heilsueflingar,“ segir hún en Göngum saman er grasrótarfélag og renna öll framlög óskipt í styrktarsjóð félagsins. „Við erum búnar að styrkja íslenska vísindamenn um fimmtíu milljónir frá árinu 2007 og við stefnum að því að veita 10 milljónir í haust, það er á stefnunni í október sem er mánuður sem er helgaður baráttunni við brjóstakrabbamein.“ Gunnhildur segir gönguna henta allri fjölskyldunni. Í Reykjavík verður gengið frá Háskólatorgi þar sem göngufólki gefst kostur á að spjalla við vísindamenn en gengið verður um miðbæinn. „Á Háskólatorgi gefst fólki tækifæri á að hitta þá vísindamenn sem við höfum stutt og fræðast um rannsóknirnar,“ segir Gunnhildur en ekki verður um skipulagða fyrirlestra að ræða heldur óformlegt spjall þar sem gestir eiga kost á að fræðast og fá svör við spurningum. „Nú bara hugsar maður við búum á Íslandi og það er ekkert sérstaklega hlýtt úti en maður bara klæðir sig eftir veðri og tekur þátt í göngunni,“ segir Gunnhildur hress og hvetur sem allra flesta til að taka þátt. Landssamband bakarameistara tekur einnig þátt í fimmta skipti og í bakaríum landsins má finna brjóstabollur en hluti af andvirði sölunnar rennur í styrktarsjóðinn. Göngurnar hefjast allar klukkan 11.00 og gengið verður í Reykjavík, Borgarnesi, Stykkishólmi, Patreksfirði, Ísafirði, Hvammstanga, Siglufirði, Akureyri, Vopnafirði, Egilsstöðum, Neskaupstað, Fáskrúðsfirði, Höfn, Vestmannaeyjum og Selfossi. Nánari upplýsingar um hvern stað er hægt að nálgast á vefsíðu félagsins, gongumsaman.is.
Mest lesið „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Lífið Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir Lífið Í vandræðum í Bláa lóninu Lífið „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ Lífið Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Lífið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS Lífið „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Lífið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Lífið Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Fleiri fréttir Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Í vandræðum í Bláa lóninu Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Sjá meira