Lífið

Finna fagran samhljóm

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Ingibjörg Guðjónsdóttir kórstjóri fékk kórstjórnarbakteríuna fyrir rúmum sautján árum.
Ingibjörg Guðjónsdóttir kórstjóri fékk kórstjórnarbakteríuna fyrir rúmum sautján árum. Mynd/Ingibjörg
Á morgun heldur Kvennakór Garðabæjar upp á fimmtán ára afmæli kórsins með afmælistónleikum í Guðríðarkirkju.

„Eins og vanalega erum við með sérstaklega fjölbreytta efnisskrá þar sem kennir ýmissa grasa, íslenskt og erlent í bland,“ segir stofnandi og kórstjóri kórsins, Ingibjörg Guðjónsdóttir.

Í tilefni af þessum tímamótum munu um þrjátíu fyrrverandi kórkonur slást í hópinn. „Við alveg margföldumst þarna uppi á sviði í lok tónleikanna þannig að þetta endar í áttatíu syngjandi konum, það er mjög skemmtilegt í tilefni afmælisins.“

Kórinn stendur á tímamótum og heldur upp á fimmtán ára afmæli sitt á morgun.
Hún segir stemninguna í kórnum góða og þær hafi meðal annars haldið þrisvar sinnum saman til útlanda frá stofnun kórsins, og í haust halda þær á alþjóðlegt kóramót í Barcelona.

Aðaláherslan er þó auðvitað á tónlistina en síðustu tvö árin segir Ingibjörg kórinn hafa verið að kynna sér norræn söng- og kórverk sem þær munu blanda með öðru léttu og skemmtilegu efni á tónleikunum.

„Það er góður samhljómur sem auðvitað kemur frá öllum þessum ólíku konum og um leið og þær hljóma saman finnum við einhvern fagran samhljóm,“ segir Ingibjörg og hlær glaðlega. „Það er gæfa þessa kórs hvað það hafa verið hæfileikaríkar og kraftmiklar konur sem hafa eflt hann í öllu, jafnt í söng og öðru starfi.“

Í nokkrum verkanna leikur strengjatríó með kórnum, skipað þeim Hlín Erlendsdóttur fiðluleikara, Herdísi Önnu Jónsdóttur víóluleikara og Helgu Björgu Ágústsdóttur sellóleikara en píanóleikari kórsins er Sólveig Anna Jónsdóttir.

Hún segir tímann fljótan að líða og seinustu fimmtán ár hreinlega hafa flogið hjá. „Þetta er svo fljótt að líða, manni finnst þetta bara hafa verið fyrir stuttu þegar maður var að stofna þetta,“ segir hún en hún hóf kórstjórnarferilinn þegar hún stofnaði Íslenska kvennakórinn í Kaupmannahöfn fyrir sautján árum.

„Þá fékk ég kórstjórnarbakteríuna, ef maður getur orðað það þannig, og þá varð ekki aftur snúið, skal ég segja þér,“ segir hún glöð í bragði að lokum. 

Tónleikarnir hefjast á morgun klukkan 16.00 í Guðríðarkirkju en miðaverð er 3.000 krónur og bjóða kórkonur gestum upp á kaffi og kökur að tónleikum loknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×