Erlent

Bílsprengja sprengd í Kaíró

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Sex lögreglumenn voru fluttir á sjúkrahús eftir sprenginguna sem átti sér stað um miðnætti að íslenskum tíma.
Sex lögreglumenn voru fluttir á sjúkrahús eftir sprenginguna sem átti sér stað um miðnætti að íslenskum tíma. Vísir/EPA
Sex lögreglumenn eru slasaðir eftir að bílsprengja sprakk í Kaíró í nótt. Sprengingin varð í grennd við opinbera byggingu í borginni.

Í yfirlýsingu frá innanríkisráðuneytinu þar í landi kemur fram að lögreglumennirnir hafi verið fluttir á sjúkrahús og að byggingin þar sem sprengingin varð hafi skemmst.

Sprengingin heyrðist víða um borgina en samkvæmt AP fréttastofunni má sjá glerbrot úr rúðum í nærliggjandi byggingum um götur í nágrenninu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×