Lífið

Dæturnar hjálpuðu við hjartnæmt bónorð

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá stelpurnar og Scott í myndbandinu. Sú yngri er þarna fyrir aftan spjaldið.
Hér má sjá stelpurnar og Scott í myndbandinu. Sú yngri er þarna fyrir aftan spjaldið.
Myndband sem hinn velski Scott Worgan gerði ásamt dætrum sínum hefur fer nú eins og eldur í sinu um netheima. Í myndbandinu biður Scott unnustu sinnar, Caitlin Miller, á einstakan hátt og nýtur liðsinnis hinna þriggja ára gömlu Scarlett og 20 mánaða Sienna.

Á vef Mirror kemur fram að stúlkurnar hafi lagt mikið á sig til þess að halda málinu leyndu frá mömmu sinni.

„Hæ mamma, gettu hvað?" skrifar Scott á spjald sem stelpurnar halda á og síðan bætast fleiri spjþau elska Caitlin og hversu frábær hún sé.

Á endanum bera stelpurnar fram bónorðið. Caitlin sagði já og viðurkenndi við Mirror að myndbandið hafi svo sannarlega hreyft við henni. Caitlin og Scott hafa verið í sambandi í sex ár og ætla að giftast í janúar á næsta ári.

Hér að neðan má sjá myndbandið.

Hér má svo sjá mynd af fjölskyldunni:





Fleiri fréttir

Sjá meira


×