Menning

Úrval mynda sem ekki er í bókinni

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hjónin Anna Dröfn Ágústsdóttir og Guðni Valberg.
Hjónin Anna Dröfn Ágústsdóttir og Guðni Valberg. Vísir/GVA
Reykjavík sem alls ekki varð er efni HönnunarMars-sýningar Crymogeu á Barónsstíg 27 sem er í höndum Önnu Drafnar Ágústsdóttur sagnfræðings og Guðna Valberg.

„Þetta er bókin sem ekki varð. Úrval mynda sem ekki fengu að vera með í bókinni Reykjavík sem ekki varð en fá nú sitt tækifæri á HönnunarMars,“ útskýrir Anna Dröfn þegar forvitnast er um sýninguna í Crymogeu sem opnuð er í dag.

Hún tekur fram að Guðni Valberg, eiginmaður hennar, sé arkitekt að sýningunni en þau hafi skrifað bókina saman.

Þriðja prentun af bókinni var að koma út en hún seldist upp fyrir jól. Anna Dröfn er ánægð með viðtökurnar.

„Okkur finnst þetta afar skemmtilegt efni og höfum ekki náð að slíta okkur frá því ennþá.“

Ein af nokkrum skissum Guðjóns Samúelssonar arkitekts að Hallgrímskirkju, á sýningunni í Crymogeu.
Þeir sem halda að byggingar fæðist fullskapaðar í höfði arkitekta komast að öðru á sýningunni. Meðal mynda þar eru skissur af Hallgrímskirkju og þar sést hugsanaferlið sem Guðjón Samúelsson, arkitekt hennar, fór í gegnum.

Svo eru þar líka myndir af borginni eins og hún er, sem módelin hafa verið sett inn í. Þá getur fólk séð muninn á því hvernig borgin hefði mögulega getað orðið og því hvernig útkoman varð.

Eða eins og Anna Dröfn segir:

„Við setjum skissurnar í samhengi við borgina eins og við þekkjum hana.“

Kvöldfréttir Stöðvar 2 sýndu beint frá opnun sýningarinnar í húsnæði Crymogeu við Barónstíg. Hægt er að sjá innslagið í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Hugmyndir fortíðar sem veruleiki nútímans

Rykinu er dustað af gömlum byggingar- og skipulagshugmyndum og þær settar í samhengi við ljósmyndir af Reykjavík í bókinni Reykjavík sem ekki varð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.