Lífið

Kylie neitar að fara aftur í Granna

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Kylie hefur sagt skilið við Nágranna.
Kylie hefur sagt skilið við Nágranna.
Áströlsku söngkonunni Kylie Minogue var boðið að koma fram í sérstökum stjörnuþætti af Nágrönnum, en hafnaði því.

Minogue fór með hlutverk Charlene Mitchell í Nágrönnum á níunda áratugnum og sló í gegn í kjölfarið.

„Ég hugsaði um að fara aftur í þáttinn, en ég held að það myndi ekki gera karakternum Charlene neinn greiða. Það hefur liðið svo langur tími að það hefði verið óeðlilegt og sennilega ekki gengið upp,“ segir hún.

Minogue hætti í Nágrönnum árið 1988 eftir að hafa leikið í þáttunum í tvö ár. Þær stjörnur sem verða í þættinum eru Guy Pearce, Delta Goodrem og Margot Robbie.

Hér fyrir neðan má sjá gamalt atriði með Kylie í hlutverki Charlene Mitchell.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×