Sextán ára tók þátt í björgun drengjanna tveggja: Björgunaraðgerðirnar þokukenndar sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 19. apríl 2015 22:04 "Við hjálpuðumst að við mamman. Við náðum taki á öðrum stráknum en það var mjög erfitt. Það var mjög mikill straumur í hringiðunni og það var erfitt að komast upp úr,“ vísir/ernir/eva
Hin sextán ára Eva Röver vann mikið afrek er hún aðstoðaði við björgun drengjanna tveggja sem festust í affalli við stífluna í Læknum í Hafnarfirði á þriðjudag. Hún segir atburðinn þokukenndan og á erfitt með að skilja hvernig hlutirnir atvikuðust. Óútskýranlegt afl hafi tekið völdin sem líklega hafi orðið börnunum til lífs. Eva er nemandi í Lækjarskóla og var daginn örlagaríka á leið til vinkonu sinnar þegar hún heyrði hróp frá ungri stúlku sem þurfti á aðstoð að halda. Hún segist ekki hafa áttað sig á alvarleika málsins fyrr en hún var komin að stíflunni ásamt móður drengjanna og systur. Mbl.is greindi fyrst frá málinu.Erfitt að komast upp úr straumhörðu vatninu „Við hjálpuðumst að við mamman. Við náðum taki á öðrum stráknum en það var mjög erfitt. Það var mjög mikill straumur í hringiðunni og það var erfitt að komast upp úr,“ segir Eva í samtali við Vísi og bætir við að vatnið hafi náð um sig miðja. „Ég brákaðist á hendinni og er líka marin á fótunum. Ég man samt ekkert eftir að hafa meitt mig neitt, þetta bara kom. Ég man vel eftir sumum pörtum atviksins en eiginlega ekkert eftir að lögreglan kom. Litla stelpan var í smá tíma hjá mér eftir þetta og ég reyndi að hugga hana og fá hana til að hugsa um eitthvað annað,“ segir hún.Stóð sig eins og hetja Eva segist hafa orðið fyrir töluverðu áfalli en er afar þakklát fyrir góðan stuðning frá fólkinu í kringum sig og Lækjarskóla. „Það eru allir mjög stoltir af mér. Ég er búin að vera í samskiptum við fjölskyldu strákanna og hitti þau í gær. Ég var mjög áhyggjufull en er ánægð með að þeir sýni svona góðan bata.“ Kristín Röver, móðir Evu, segist afar stolt af dóttur sinni. Það hafi þó verið erfitt að fá símtal frá ókunnugri konu úr síma Evu. „Ég man eiginlega ekki eftir símtalinu. Ég held að konan hafi kynnt sig en ég man ekki nafnið. Hún sagði mér að eitthvað hefði gerst en ég man bara að ég átti að sækja dóttur mína,“ segir hún. „Þetta er auðvitað áfall. Þetta er erfið lífsreynsla fyrir ungling á þessum aldrei en hún stóð sig eins og hetja. Hún er búin að fá frábært aðhald bæði í skólanum og fékk að hitta fjölskylduna, lögreglumennina og alla sem komu að þessu. Þannig að það er vel haldið utan um þessa dömu,“ bætir hún við. Fjallað var um drengina tvo í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Felix Valsson, sérfræðingur í svæfingu og gjörgæslu, sagði frá því sagði að kælimeðferð sem drengurinn undirgekkst hafi aukið lífslíkur hans umtalsvert. Viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Tengdar fréttir Allir sem komu að björgunaraðgerðum í Hafnarfirði munu fá áfallahjálp Tveir drengir lentu ofan í fossi við stífluna í bæjarlæknum í Hafnarfirði. Endurlífgunartilraunir tókust á öðrum en hinum var haldið sofandi í öndunarvél þegar Fréttablaðið fór í prentun. Tveir fullorðnir í bráðri hættu við björgunarstörf. 15. apríl 2015 07:00 Húsmæður sögðu Reykdalsstíflu lífshættulega árið 1970 Hafnarfjarðarbær kannast ekki við kvartanir vegna stíflunnar en skrifað var um það í Vísi fyrir 45 árum. 17. apríl 2015 11:15 Drengurinn vaknaður og kominn úr öndunarvél Drengurinn sem fluttur var án meðvitundar á slysadeild eftir slys í Hafnarfirði er kominn úr öndunarvél. 17. apríl 2015 16:59 Ekki vitað til þess að slys hafi áður átt sér stað við Reykdalsstíflu Engar skráningar um slys við Reykdalsstíflu finnast hjá Hafnarfjarðarbæ en stíflan var fyrst byggð árið 1906. 15. apríl 2015 12:00 Mest lesið Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Erlent Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Innlent Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Innlent Fleiri fréttir Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Sameining sveitarfélaga á Suðurnesjum og stórleikur í körfunni Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Reyndist vera eftirlýstur „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Stór skjálfti í Bárðarbungu Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Veðmál barna og verslunarmiðstöð í Vogum Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Sjá meira
Allir sem komu að björgunaraðgerðum í Hafnarfirði munu fá áfallahjálp Tveir drengir lentu ofan í fossi við stífluna í bæjarlæknum í Hafnarfirði. Endurlífgunartilraunir tókust á öðrum en hinum var haldið sofandi í öndunarvél þegar Fréttablaðið fór í prentun. Tveir fullorðnir í bráðri hættu við björgunarstörf. 15. apríl 2015 07:00
Húsmæður sögðu Reykdalsstíflu lífshættulega árið 1970 Hafnarfjarðarbær kannast ekki við kvartanir vegna stíflunnar en skrifað var um það í Vísi fyrir 45 árum. 17. apríl 2015 11:15
Drengurinn vaknaður og kominn úr öndunarvél Drengurinn sem fluttur var án meðvitundar á slysadeild eftir slys í Hafnarfirði er kominn úr öndunarvél. 17. apríl 2015 16:59
Ekki vitað til þess að slys hafi áður átt sér stað við Reykdalsstíflu Engar skráningar um slys við Reykdalsstíflu finnast hjá Hafnarfjarðarbæ en stíflan var fyrst byggð árið 1906. 15. apríl 2015 12:00