Björguðu fimmtíu köttum úr iðnaðarhúsnæði í Reykjavík Atli ísleifsson skrifar 5. október 2015 14:34 Lagt var hald á fimmtíu ketti á staðnum. Kettirnir voru heilbrigðisskoðaðir af dýralæknum og þurfti að lóga tveimur. Vísir/Getty
Starfsmenn Matvælastofnunar björguðu fimmtíu köttum úr iðnaðarhúsnæði í Reykjavík í síðustu viku. Köttunum var haldið við bágar aðstæður þar sem umönnun og þrifnaði var verulega ábótavant. Umráðamaður húsnæðisins var handtekinn.Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að köttunum hafi nú verið komið fyrir hjá Dýrahjálp, í Kattholti og í Kisukoti þar sem þeim verður ráðstafað á ný heimili. „Í kjölfar ábendingar um umfangsmikið kattahald í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík hafði Matvælastofnun samband við umráðamann húsnæðisins. Umráðamaðurinn meinaði eftirlitsmönnum stofnunarinnar aðgang að staðnum. Matvælastofnun fékk dómsúrskurð til að framkvæma eftirlit sem fór fram í síðustu viku. Eftirlitið leiddi í ljós umfangsmikið kattahald við slæmar aðstæður og var tekin ákvörðun um vörslusviptingu í framhaldinu. Vörslusvipting var framkvæmd með aðstoð lögreglu tveimur dögum síðar. Umráðamaður reyndist ósamvinnuþýður og var handtekinn af lögreglu í kjölfarið. Lagt var hald á 50 ketti á staðnum. Kettirnir voru heilbrigðisskoðaðir af dýralæknum. Lóga þurfti tveimur köttum að skoðun lokinni. Þrjár vörslusviptingar gæludýra hafa verið framkvæmdar af Matvælastofnun í Suðvesturumdæmi síðasta árið.Nánar er fjallað um málið á síðu Matvælastofnunar.
Mest lesið Fjöldi látinn eftir flugslys í Suður-Kóreu Erlent Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Erlent „Mér liggur við að segja að það eigi að fara að afgreina fólk“ Innlent Fleira en veðrið sem mæli með umdeildum hugmyndum um frestun Innlent Hvorugur kannaðist við að hafa verið að keyra bílinn Innlent Ekki séð stærri hval reka í Víkurfjöru Innlent „Sá sem býður lökustu kjörin á landinu fær augljóslega ekki starfsmann“ Innlent Björgunarsveitir aðstoðað tugi vegfarenda Innlent Á 502 derhúfur og segir það ákveðna bilun Innlent Minnst fimmtán áfrýja í máli Pelicot Erlent Fleiri fréttir Straumar og stefnur stjórnmálanna 2024 Hvorugur kannaðist við að hafa verið að keyra bílinn Fleira en veðrið sem mæli með umdeildum hugmyndum um frestun Björgunarsveitir aðstoðað tugi vegfarenda Á 502 derhúfur og segir það ákveðna bilun „Mér liggur við að segja að það eigi að fara að afgreina fólk“ Ekki séð stærri hval reka í Víkurfjöru Ólga innan Sjálfstæðisflokksins og maður sem á fimm hundruð derhúfur Holtavörðuheiði og Súðavíkurhlíð lokað „Sá sem býður lökustu kjörin á landinu fær augljóslega ekki starfsmann“ „Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“ Hvað þarf að ræða í Kryddsíldinni? Enginn læknir á vaktinni „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Flugeldasala Landsbjargar hafin Ósætti með mögulega frestun landsfundar og flugeldasala Hvað vildu Íslendingar vita á árinu? Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Ófært í Ísafjarðardjúpi Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Sakamálin sem skóku þjóðina Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Sjá meira