Enski boltinn

Klopp boðinn nýr samningur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mikil ánægja er með störf Klopp hjá Liverpool.
Mikil ánægja er með störf Klopp hjá Liverpool. vísir/getty
Eigendur Liverpool, Fenway Sport Group, vilja ólmir halda knattspyrnustjóranum Jürgen Klopp hjá félaginu og eru hafa hafið viðræður við Þjóðverjann um nýjan samning.

Klopp hefur aðeins verið við stjórnvölinn hjá Liverpool í níu mánuði en núgildandi samningur hans rennur út 2018. Talið er að FSG vilji framlengja þann samning um a.m.k. tvö ár.

Klopp tók við Liverpool í október í fyrra og kom liðinu bæði í úrslit í enska deildarbikarnum og í Evrópudeildinni. Liverpool tapaði báðum leikjunum, fyrir Manchester City og Sevilla.

Klopp var áður við stjórnvölinn hjá Mainz 05 og Borussia Dortmund en hann gerði síðarnefnda liðið í tvisvar að þýskum meisturum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×