Brottflutningur frá Aleppo stöðvaður Guðsteinn Bjarnason skrifar 17. desember 2016 07:00 Börn að leik innan um rústirnar í Aleppo í borgarhluta sem stjórnarherinn er með á sínu valdi. Vísir/AFP „
Enginn veit hve margir eru enn eftir í austurhluta borgarinnar og brottflutningurinn gæti staðið yfir dögum saman,“ segir Marianne Gasser, yfirmaður Alþjóðanefndar Rauða krossins í Sýrlandi. Sýrlandsstjórn stöðvaði í gærmorgun allan brottflutning fólks, en á fimmtudaginn hafði tekist að koma um 9.000 manns frá borginni.Fólkið var flutt í bílalestum, margir í sjúkrabifreiðum en aðrir með strætisvögnum, yfir á svæði uppreisnarmanna vestan megin borgarinnar. Nærri tvö hundruð manns þurfti að flytja á sjúkrahús, ýmist á svæðum uppreisnarmanna í Aleppo-héraði, vestan borgarinnar, eða Idlib-héraði þar fyrir norðan. Mikið álag er fyrir á þessum sjúkrahúsum, en sumir voru fluttir á sjúkrahús í Tyrklandi. Yfirlýsingar voru misvísandi í gær um það hvort brottflutningi yrði haldið áfram eða ekki. Rússneski herinn sagði að brottflutningnum væri alveg lokið en fulltrúi Sýrlenska hersins segir að hann hafi aðeins verið stöðvaður um óákveðinn tíma. Sameinuðu þjóðirnar segja að 50 þúsund manns hið minnsta séu ennþá eftir í borgarhlutanum, en um tíu þúsund þeirra þurfi að flytja yfir á svæði uppreisnarmanna í Idlib. Hinir fari væntanlega yfir í aðra borgarhluta, sem stjórnarherinn hefur á sínu valdi. Uppreisnarmenn gegn stjórn Bashars al Assad forseta hafa haft austurhluta Aleppo-borgar á sínu valdi undanfarin fjögur ár. Grimmileg átök, ekki þó síst sprengjuárásir stjórnarhersins og stuðningsmanna hans á borgarhlutana, hafa kostað þúsundir manna þar lífið. Frá 21. nóvember hefur stjórnarhernum tekist að hrekja uppreisnarmenn að mestu úr borginni, þótt enn haldi þeir tveimur hverfum syðst í austurhlutanum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Ólíklegt að hættustigið verði lækkað á komandi árum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Innlent Kveiktu á tónlist til að yfirgnæfa hávaða í mótmælendum Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bandaríkin muni semja Innlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Sjá meira