Viðskipti innlent

Segist ekki hafa vitað að Borgun fengi greiðslur vegna Visa Europe

ingvar haraldsson skrifar
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Vísir/Daníel
Landsbankinn segist ekki hafa upplýsingar um að Borgun gæti átt von á greiðslum vegna valréttar Visa Inc. á Visa Europe þegar bankinn seldi 31,2 prósenta hlut í Borgun á 2,2 milljarða í lok nóvember 2014. Þetta kemur fram á upplýsingavef sem Landsbankinn hefur komið upp vegna sölu bankans á Borgun. Upphæðirnar sem um ræðir eru taldar hlaupa á milljörðum.

Landsbankinn seldi 31 prósents hlut í Borgun í nóvember 2014.Vísir/Ernir
Bankinn segist því ekki hafa sett sem skilyrði við söluna á hlut í Borgun að ef kaupum á Visa Europe yrði myndu greiðslur sem Borgun fengi renna til Landsbankans í samræmi við hlut bankans.

Þegar bankinn seldi 38 prósenta hlut sinn í Valitor til Arion banka þremur vikum síðar var hins vegar ákvæði að ef kaupum á Visa Europe yrði myndi Landsbankinn fá þær greiðslur.

Landsbankinn hefur hins vegar viðurkennt að hafa vitað að af kaupunum á Visa Europe gæti orðið.

Enda var greint frá málinu í fjölmiðlum víða um heim áður en tilkynnt var um sölu bankans á Borgun. Þá taldi Visa Inc. að Visa Europe myndu kosta yfir 10 milljarða dollara, um 1.300 milljarða króna.

Í lok árs síðasta árs var svo greint frá því að af kaupunum yrði og kaupverðið væri 21 milljarður evra, um 3.000 milljarða íslenskra króna. Upphæðin skiptist milli útgefenda Visa korta í Evrópu eftir umsvifum þeirra.

Landsbankinn seldi hlutinn í Borgun til hóps fjárfesta og stjórnenda Borgunar. Í apríl á síðasta ári, greiddi fyrirtækið 800 milljónir í arð til eigenda sinna, sem var fyrsta arðgreiðslan frá 2007

Landsbankinn segir ekki hafa fengið upplýsingar um hugsanleg réttindi í viðræðunum frá Borgun og þá hafi heldur Borgun ekki getið til um þær í ársreikningum sínum. „Stjórnendahópurinn sem var í viðræðum við Landsbankann hafði fengið leyfi stjórnar til að gefa upplýsingar um rekstur félagsins. Í viðræðunum við stjórnendur komu ekki fram neinar upplýsingar um að Borgun hefði rétt til hlutdeildar í verðmætum valréttarins, hvað þá að vegna hans hefðu skapast verðmæti hjá Borgun. Landsbankinn hefur enga ástæðu til að ætla að stjórnendur Borgunar hafi verið meðvitaðir um tilvist slíkra réttinda,“ segir á upplýsingavef bankans.

Þá segir Landsbankinn að þær greiðslur sem Borgun eigi von á hafi að mestu komið til vegna aukinna Visa viðskipta Borgunar erlendis á árinu 2015, eftir að bankinn seldi hlut sinn í Borgun. Landsbankinn hafi vitað af þessum áformum um vöxt erlendis og talið þau afar áhættusöm.  „Að mati bankans fylgdi þeirri starfsemi veruleg áhætta og líkur voru taldar á að hún gæti leitt til tjóns hjá félaginu. Bankinn byggði þetta mat sitt m.a. á fyrri útrásarsögu íslenskra kortafyrirtækja.“

Landsbankinn mun að eigin frumkvæði afhenda Alþingi samantekt um málið.


Tengdar fréttir

Landsbankinn vissi að Visa gæti tekið yfir Visa Europe

Landsbankinn hafði upplýsingar um valrétti en hafði engar upplýsingar um að Borgun hf. gæti notið hagsbóta af yfirtöku á VISA Europe. Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir það hafa legið fyrir síðar, eftir söluna á bréfunum í Borgun hf.

Skilyrði eftirlitsins höfðu ekki áhrif á sölu Borgunar

"Við fáum ekki séð að nein skilyrði sem hvíldu á Landsbankanum af hálfu Samkeppniseftirlitsins hafi haft áhrif á verð eða skilmála þessarar sölu,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, um sölu Landsbankans á kortafyrirtækinu Borgun.

Boðað til mótmæla fyrir utan Landsbankann

Í mótmælaboðinu er spurt hvort það sé trúverðugt að bankinn hafi selt eignarhlutinn í Borgun án þess að hafa hugmyndir um áætlanir fyrirtækisins um útrás.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×