Erlent

Fannst í farangursrými farþegaflugvélar

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Starfsmenn Emirates flugfélagsins fundu drenginn þegar verið var að tæma vélina og afhentu hann lögreglunni.
Starfsmenn Emirates flugfélagsins fundu drenginn þegar verið var að tæma vélina og afhentu hann lögreglunni. vísir/getty
Kínverskur unglingur fannst í farangursrými farþegaþotu sem flogið hafði verið frá Shjanghaí í Kína og til Dúbaí.

Starfsmenn Emirates flugfélagsins fundu drenginn þegar verið var að tæma vélina og afhentu hann lögreglunni.

Kínverskir fjölmiðlar hafa eftir drengnum að honum hafi liðið vel í ferðinni sem tók rúma níu tíma en hann mun hafa heyrt af því að auðvelt væri að betla sér til matar í Dúbaí og því hafi hann ákveðið að freista gæfunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×