Innlent

Nauðsynlegt að draga úr losun næringarefna í Mývatn

Atli Ísleifsson skrifar
Slæmt ástand vatnsins hefur vakið upp spurningar um hvort mannlegir þættir, svo sem innstreymi fráveituvatns, eigi þar hlut að máli og hvort hægt sé að bæta þar úr.
Slæmt ástand vatnsins hefur vakið upp spurningar um hvort mannlegir þættir, svo sem innstreymi fráveituvatns, eigi þar hlut að máli og hvort hægt sé að bæta þar úr. Vísir/GVA
Rétt er að ríkisvaldið og Skútustaðahreppur vinni saman að umbótum í fráveitumálum og öðrum aðgerðum til að draga úr innstreymi næringarefna í Mývatn.

Þetta kemur fram í skýrslu samstarfshóps um málefni Mývatns sem skilað hefur verið til umhverfisráðherra. Í skýrslunni er að finna ábendingar og samantekt á upplýsingum um ástand vatnsins og mögulegar aðgerðir til að draga úr neikvæðum áhrifum og efla rannsóknir og vöktun.

Í frétt á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins segir að undanfarin tvö ár hafi verið miklir blómar af blábakteríum í Mývatni, sem hafi varað óvenju lengi og hafa neikvæð áhrif á marga þætti í lífríki vatnsins og Laxár.

„Slæmt ástand vatnsins hefur vakið upp spurningar um hvort mannlegir þættir, s.s. innstreymi fráveituvatns, eigi þar hlut að máli og hvort hægt sé að bæta þar úr. Umræða um málið var m.a. á Alþingi í maí sl. og óskaði ráðherra eftir skýrslunni í kjölfar hennar.

Í skýrslunni kemur m.a. fram að vísindamenn telja að neikvæðar breytingar í lífríki Mývatns bendi til næringarefnaauðgunar.  Þótt ekki teljist sannað að slíkt sé helsta orsök vandans sé engu að síður nauðsynlegt að draga úr losun næringarefna á borð við fosfór og nitur í vatnið. Bent er á að þegar séu kröfur um slíkt á grundvelli laga um vernd Mývatns og Laxár. Sveitarstjórn Skútustaðahrepps hefur brugðist við þeim kröfum m.a. með því að fá tillögu um hreinsun skólps frá þéttbýlinu í Reykjahlíð, en hefur bent á að slíkar lausnir séu dýrar og að erfitt sé fyrir lítið sveitarfélag að standa undir ströngum kröfum um hreinsun fráveituvatns.

Í skýrslunni er bent á að krafa um hreinsun fráveituvatns eigi við um fleiri svæði en Reykjahlíð. Því sé rétt að gera heildstæða áætlun um úrbætur í fráveitumálum sem fyrst og vinna eftir henni,“ segir í fréttinni.

Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði samstarfshópinn 17. maí síðastliðinn og óskaði eftir því að hann skilaði samantekt um ástand mála í Mývatni, orsakir þess vanda sem þar er nú við að búa og hugsanlegar aðgerðir til að bæta þar úr, meðal annars á sviði fráveitumála. Hópinn skipuðu átta fulltrúar frá stofnunum, hagsmuna- og umhverfisverndarsamtökum, Skútustaðahreppi og ráðuneytinu.

Í fréttinni kemur fram að tilgangur samantektarinnar sé að aðstoða stjórnvöld við ákvarðanatöku varðandi mögulegar aðgerðir sem gætu komið að gagni til að draga úr álagi af manna völdum á lífríki vatnsins. Ráðherra mun leggja skýrsluna og hugmyndir starfshópsins fram í ríkisstjórn í framhaldinu.

Hér má sjá skýrsluna í heild sinni.


Tengdar fréttir

Ástandið við Mývatn tekið til skoðunar

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis-og auðlindaráðherra, hefur skipað samstarfshóp sem ætlað er að taka saman lykilupplýsingar um ástand mála í Mývatni.

Kalla eftir viðbrögðum vegna Mývatns

Þrír þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram þingsályktunartillögu um ráðstafanir til að bæta fráveitumál á landsbyggðinni og viðbrögð við náttúruvá við Mývatn.

Kúluskítur finnst á ný í Mývatni

„Kúluskítsbörn í Mývatni! Í stormviðrinu undanfarna daga hefur borist dálítið af þörungaló upp á strönd Mývatns við Vagnbrekku."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×