Leggja allt kapp á að ná til vannærðra barna í Mið- og Vestur-Afríku Atli Ísleifsson skrifar 15. nóvember 2016 21:58 UNICEF á Íslandi hóf í gær neyðarsöfnun vegna ástandsins í Nígeríu og nágrannaríkjunum þar sem rúmlega tvö hundruð börn láta lífið á degi hverjum vegna vannæringar. Mynd/UNICEF
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur stóraukið aðgerðir sínar í Vestur- og Mið-Afríku til að koma í veg fyrir frekari hörmungar þar sem um hálf milljón barna eru nú í lífshættu vegna vannæringar.Í frétt á vef UNICEF segir að tölur frá Borno-héraði í norðausturhluta Nígeríu bendi til þess að ástandið jaðri við hungursneyð á ákveðnum svæðum. Héraðið er á stærð við Ísland og búa þar um 65 þúsund manns við aðstæður sem svipi til hungursneyðar. Það þýði að fjöldi manns sé í raunverulegri hættu á að deyja vegna matarskorts – nokkuð sem sjaldan sjáist í heiminum. „Til að hungursneyð sé formlega lýst yfir þurfa til dæmis tveir fullorðnir eða fjögur börn á hverja 10.000 íbúa að deyja á dag og 20% fólks að líða mjög alvarlegan matarskort. Börn á aldrinum 6 mánaða til 5 ára eru í mestri hættu. Þar af eru börn 6 mánaða til 2 ára viðkvæmust og fyrst til að láta lífið. Barn sem þjáist af alvarlegri bráðavannæringu er margfalt líklegra til að deyja af völdum sjúkdóma en önnur börn sem veikjast, til dæmis af malaríu, lungnabólgu og niðurgangspestum,“ segir í fréttinni. UNICEF á Íslandi hóf í gær neyðarsöfnun vegna ástandsins í Nígeríu og nágrannaríkjunum þar sem rúmlega tvö hundruð börn láta lífið á degi hverjum vegna vannæringar. Með réttri meðhöndlun megi koma í veg fyrir 99 prósent dauðsfallanna. Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir að með þremur pökkum á dag af vítamínbættu jarðhnetumauki, ásamt saltupplausnum og lyfjum ef þess þurfi – nái flest börn sér á einungis fáeinum vikum. Magnað sé að sjá árangurinn. „Tíminn er hins vegar naumur og við verðum að bregðast hratt við. Við heyrum í gegnum samstarfsfólk okkar á vettvangi af dauðsföllum þar sem börn hafa hreinlega soltið til dauða. Nauðsynlegt er að fara hús úr húsi til að finna börn og koma þeim í meðferð. Sem betur fer eru 15.000 sjálfboðaliða á svæðinu með okkur í þessu,“ segir Bergsteinn.Nánar má lesa um söfnunina á vef UNICEF.
Mest lesið Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Innlent Flugfreyjan frestaði íbúðakaupum og fórnaði sparnaðinum í flugnám Innlent Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Erlent Ólafur Ragnar um Davíð Oddsson: „Hugsar og hegðar sér eins og fasisti“ Innlent Bjóða upp á sértíma í líkamsrækt fyrir trans og kynsegin Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir hópslagsmál Innlent Bein útsending: Assange lætur í sér heyra Innlent Gríðarlega umfangsmikið matskerfi á leið inn í skólakerfið Innlent Flogið yfir Goðabungu eftir stóra skjálftann Innlent Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Erlent Fleiri fréttir Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Sjá meira