Enski boltinn

Stjórnarformaður West Ham eys úr skálum reiði sinnar vegna ummæla Eggerts

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Sullivan, lengst til hægri, er óánægður með ummæli Eggerts.
David Sullivan, lengst til hægri, er óánægður með ummæli Eggerts. Vísir/Getty
David Sullivan, öðrum stjórnarformanna enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham, var ekki skemmt yfir viðtali sem birtist við Eggert Magnússon í The Sun um helgina.

Sjá einnig: Eggert vill láta rífa nýjan heimavöll West Ham

West Ham fluttist frá Upton Park og á Lundúnarleikvanginn fyrir þetta tímabil en hlutirnir hafa ekki gengið sem skyldi á nýja vellinum. Kostnaðurinn fór upp úr öllu valdi og þá óeirðir brotist út á vellinum.

Leikvangurinn var reistur fyrir Ólympíuleikana sem haldnir voru í Lundúnum árið 2012 en sagði Egggert að ekki væri hægt að reisa Ólympíleikvang og breyta honum svo í knattspyrnuleikvang eftir á.

„Þú þarft að byrja að hugsa um fótboltann. Við vorum búnir að gera áætlanir um völl með innfellanlegum sætum, eins og á Stade de France,“ var haft eftir Eggerti í viðtalinu og bætti hann við að skásta lausnin væri að rífa völlinn og byggja hann frá grunni.

Eggert skildi West Ham eftir í skuldasúpu

Sullivan var ekki ánægður með ummæli Eggerts og ritaði pistil á heimasíðu West Ham í gær. Þar byrjaði hann að staðhæfa að Eggert hafi skilið við West Ham í slæmri stöðu.

„Hr. Magnússon var stjórnarformaður hjá félaginu í rúmt ár, frá 2006 til 2007, og þegar hann fór skuldaði félagið 110 milljónir punda,“ skrifaði Sullivan.

„Framtíð félagsins var ógnað í hans stjórnartíð enda var félagið á barmi greiðslustöðvunar. Sem betur fer gat ég og núverandi stjórn verndað félagið og tryggt framtíð þess.“

Segir hann enn fremur að Eggert hafi nú gagnrýnt félagið fyrir að sjá til þess að arfleifð Ólympíuleikanna 2012 verði varðveitt og að borgin og landið allt eigi margnota leikvant sem við getum öll verið stolt af.

Bendir hann á að leikvangurinn hafi fengið verið í settur í hæsta flokk hjá Knattspyrnusambandi Evrópu og að hann sé því nógu góður fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Hann viðurkennir þó að það sé þó ýmsilegt sem betur megi fara en vísar rökfærslu Eggerts til föðurhúsanna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×