TF-GNÁ í tvö sjúkraflug á hálfum sólarhring Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. desember 2016 10:28 TF-Gná hefur átt í nógu að snúast síðastliðinn sólarhring. Vísir/vilhelm
Mikið annríki hefur verið hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar en TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar, hefur farið í tvö sjúkraflug síðasta hálfa sólahringinn. Í tilkynningu kemur fram að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi rúmlega átta í gærkvöldi borist beiðni um þyrlu vegna alvarlega veiks einstaklings á Ísafirði. Veðuraðstæður voru slæmar og því ekki fært sjúkraflugvél Mýflugs sem fyrst hafði verið óskað eftir. TF-GNÁ fór því á vettvang en á flugleið var töluverð ókyrrð, skyggni slæmt og þónokkur ísing. Lent var á Ísafirði þar sem sjúklingurinn var fluttur um borð í þyrluna en á vettvangi var jafnframt ákveðið að flytja annan sjúkling frá Ísafirði sem komast þurfti undir læknishendur í Reykjavík. Þyrlan hélt því af stað með tvo sjúklinga til Reykjavíkur þar sem lent var rétt eftir miðnætti. Klukkan rúmlega sex í morgun barst svo stjórnstöð beiðni um þyrlu vegna veiks einstaklings í Stykkishólmi. Þyrlan fór í loftið um 06:30 og var komin á vettvang um tuttugu mínútum síðar. Sjúklingur hafði þá verið fluttur með sjúkrabíl í átt að Borgarfjarðarbrú til móts við þyrluna. Að sögn Landhelgisgælsunnar var umtalsverð skýjahæð og þoka á leiðinni svo fljúga þurfti lágt meðfram ströndu en flugið gekk eftir sem áður vel. Lent var með sjúkling um tuttugu mínútur yfir sjö í morgun við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.
Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Fleiri fréttir Kom ekkert annað til greina en Miðflokkurinn Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Vill leiða Viðreisn í Suðurkjördæmi Sjá meira