Fótbolti

Lélegasti leikur liðsins undir minni stjórn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stjörnur Barcelona hengja haus í gær.
Stjörnur Barcelona hengja haus í gær. vísir/getty
Það er krísa hjá Barcelona sem mátti sætta sig við jafntefli, 1-1, gegn Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni í gær.

Börsungar voru heppnir í leiknum. Löglegt mark var dæmt af Sociedad og tvisvar skaut liðið í markstangirnar hjá Barcelona.

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég upplifi að lið labbi yfir okkur síðan ég tók við liðinu,“ sagði svekktur þjálfari Barcelona, Luis Enrique.

„Ef við lítum á úrslitin þá voru þetta bestu úrslit tímabilsins hjá okkur því við áttum ekkert í þessum leik.“

Þetta var ekki beint upphitunin sem Barcelona var að vonast eftir áður en liðið spilar við Real Madrid næstkomandi laugardag.

„Ég efast ekkert um að það mæti önnur útgáfa af Barcelona-liðinu í þann leik,“ sagði Enrique.


Tengdar fréttir

Neymar lenti í árekstri í morgun

Hinn brasilíski Neymar lenti í árekstri í morgun þegar hann var á leið að hitta liðsfélaga sína fyrir leikinn gegn Real Sociedad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×