Enski boltinn

Það var auðvelt að hafna Arsenal

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jamie Vardy.
Jamie Vardy. vísir/getty
Lengi vel í sumar benti margt til þess að Jamie Vardy myndi yfirgefa Leicester City og ganga í raðir Arsenal.

Svo fór nú ekki og á endanum skrifaði Vardy undir nýjan samning við Englandsmeistarana.

Vardy hefur nú farið yfir hvernig málið blasti við honum.

„Ég sat inn á hótelherbergi í marga klukkutíma á dag og það var ekkert að gera. Þá var mikill tími til að hugsa um hvað ég vildi gera en ég komst alltaf að sömu niðurstöðu. Bæði hausinn á mér og hjartað sögðu að ég ætti að vera áfram hjá Leicester,“ sagði Vardy við Newsweek.

„Ef maður fær ekki strax á tilfinninguna að þetta sé rétta skrefið þá á maður ekki að taka það skref. Það er svo einfalt. Þetta var erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka á ferlinum en á endanum var ákvörðunin auðveld.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×