Árásir á heimili fyrir hælisleitendur í Þýskalandi fimmfaldast Atli Ísleifsson skrifar 29. janúar 2016 13:05 Lögregla í Þýskalandi segir að mesta aukningin hafi verið í Norðurrín-Vestfalíu í vesturhluta landsins. Vísir/AFP
Árásir á heimili fyrir hælisleitendur í Þýskalandi fimmfölduðust á síðasta ári, borið saman við árið þar á undan. Lögregla í Þýskalandi segir árásir á slík heimili á síðasta ári hafa verið 1.005 talsins, borið saman við 199 árið 2014. Hægriöfgamenn eru grunaðir um verknaðina í níutíu prósent tilvika. Um 1,1 milljón manna sóttu um hæli í Þýskalandi á síðasta ári og voru Sýrlendingar fjölmennasti hópurinn. Sveitarfélög hafa mörg átt í miklum vandræðum með að hýsa fólkið. Í frétt BBC kemur fram að Þýskaland hyggist fjölga ríkjum lista yfir ríki sem teljast „örugg“, í þeirri von að draga úr flóttamannastraumnum. Sigmar Gabriel varakanslari segir að Marokkó, Alsír og Túnis verði bætt á listann yfir þau lönd sem teljast örugg og þar með sé óhætt að senda flóttamenn frá þeim aftur til baka. Á síðasta ári var Albaníu, Bosníu og Hersegóvínu og Kósóvó bætt á listann til að draga úr fjölda hælisleitenda. Lögregla segir að mesta aukningin í árásum á heimili fyrir hælisleitendur hafi verið í Norðurrín-Vestfalíu í vesturhluta landsins.
Flóttamenn Mest lesið Segist afhjúpa sannleikann í „tengdamömmumálinu“ Innlent Kominn tími til að rapparar og áhrifavaldar axli ábyrgð Innlent Björguðu dreng úr gjótu Innlent Ber ekki ábyrgð á tjóni stuðningsfulltrúa sem nemandi beitti ofbeldi Innlent Friðrik Ólafsson er látinn Innlent Allir og amma þeirra keppast um að skilgreina „woke“ Innlent „Það eru ekki skattahækkanir“ Innlent Óbólusettir ættu að huga að sinni stöðu fyrir ferðalög Innlent Sagði Sólveigu Önnu tala eins og Trump: „Horfðu í spegil!“ Innlent Dæla tölvupóstum á ráðherra Innlent Fleiri fréttir Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Skoða kostnaðinn við yfirtöku Grænlands Loka síðasta kolaorkuveri Finnlands Demókratar unnu dýrustu dómarakosningar Bandaríkjanna Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Talaði í 25 tíma og sló Bandaríkjamet Sjá meira