Elías Már skoraði í þriðja leiknum í röð Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. september 2016 19:00 Elías Már Ómarsson er sjóðheitur. mynd/ifk
Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson er heldur betur í stuði með IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta þessa dagana, en hann skoraði í þriðja leiknum í röð í kvöld þegar IFK lagði Östersund á heimavelli, 2-0. Elías Már skoraði annað mark liðsins á 73. mínútu eftir að Sören Rieks kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik. Þetta var annar sigur Gautaborgarliðsins í röð en það eygir enn von í baráttunni um Evrópusæti. Elías Már er búinn að skora fjögur mörk í síðustu fimm leikjum fyrir Gautaborg en sænska liðið fékk hann á láni frá Vålerenga í Noregi og er með forkaupsrétt á honum eftir tímabilið. Birkir Már Sævarsson lagði upp annað mark Hammarby er Íslendingaliðið vann góðan útsigur á Falkenberg, 2-0. Birkir Már lagði upp fyrra markið fyrir Erik Israelsson á 25. mínútu en Pa Dibba tryggði Hammarby sigurinn á 56. mínútu með fyrsta marki sínu fyrir liðið. Ögmundur Kristinsson stóð vaktina í marki Hammarby að vanda og hélt hreinu en allir Íslendingarnir þrír voru í byrjunarliðinu. Arnór Smárason byrjaði á hægri kantinum. Hammarby er efti sigurinn í níunda sæti með 32 stig en það er búið að vinna tvo af síðustu þremur leikjum sínum. Jón Guðni Fjóluson er enn þá frá vegna meiðsla hjá Norrköping sem missti af tækifærinu að endurheimta toppsætið þegar liðið tapaði fyrir Djurgården á heimavelli, 3-1.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sjá meira