Erlent

Sendiherra Rússlands í Tyrklandi særður eftir skotárás

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Andrei Karlov.
Andrei Karlov. vísir/afp
Andrei Karlov, sendiherra Rússa í Tyrklandi, er alvarlega særður eftir skotárás sem átti sér stað á listasafni í höfuðborginni Ankara í dag. Nokkrir aðrir særðust í árásinni, að því er segir á vef breska ríkisútvarpsins.

Ekki er vitað hverjir bera ábyrgð á árásinni, en hún er gerð degi eftir fjölmenn mótmæli í Tyrklandi vegna hernaðaríhlutunar Rússa í Sýrlandi.

Ekki hafa borist frekari fregnir af árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×