Fótbolti

Ronaldo ekki valinn í portúgalska landsliðið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. vísir/getty
Fernando Santos, landsliðsþjálfari Portúgal, var að velja sinn fyrsta landsliðshóp eftir EM-ævintýrið og hann sleppti því að velja fyrirliða liðsins, Cristiano Ronaldo.

Santos segir að Ronaldo, sem var valinn besti knattspyrnumaður Evrópu í gær, sé ekki í nógu góðu formi.

Portúgal er að fara að spila gegn Gíbraltar og Sviss í undankeppni HM.

Ronaldo meiddist á hné í úrslitaleik EM og er nýbyrjaður að æfa. Santos segir að hann sé einfaldlega ekki í standi til að spila landsleiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×