Merkel segir kreppu Evrópusambandsins ekki leysta á einum fundi Heimir Már Pétursson skrifar 16. september 2016 20:46
Leiðtogar tuttugu og sjö ríkja Evrópusambandsins komu saman til fundar í Bratislava í Slóvakíu í dag til að ræða helstu vandamál sem steðja að sambandinu. Bretar eru ekki lengur hafðir með í ráðum og sat forsætisráðherra þeirra því heima að þessu sinni. Theresa May situr ekki við borð leiðtoga Evrópusambandsins og Bretar eru ekki lengur hafðir með í ráðum þegar framtíð sambandsins er rædd. Fjölþætt vandamál steðja að sambandinu og er talið að flóttamannavandinn hafi verið efstur á baugi leiðtoganna í dag. En þótt brotthvarf Breta hafi ekki verið formlega á dagskrá er líklegt að afleiðing þess hafi verið rædd. Angela Merkel kanslari Þýskalands lagði áherslu á að þétta þyrfti raðirnar innan Evrópusambandsins. „Það þýðir ekki að vænta þess að lausn á vanda Evrópu náist á einum fundi. Við erum í erfiðri stöðu. En við verðum að sýna með aðgerðum að við getum bætt okkur á sviði öryggis, innra og ytra öryggis, barist gegn hryðjuverkum, unnið saman að varnarmálum, bætt hagvöxt og atvinnuástand og mér er sérstaklega hugleikin stefnan í stafrænum málum og stafræni heimamarkaðurinn. Sagði valdamesti stjórnmálamaður Evrópusambandsins fyrir fundinn í dag. En flóttamannavandinn var Alexis Tsipras forsætisráðherra Grikklands efst í huga enda eru Grikkir sú þjóð innan Evrópusambandsins sem hefur fundið hvað mest fyrir flóttamannastraumnum,“sagði þessi valdamesti stjórnmálamaður Evrópusambandsins fyrir fundinn í dag. En flóttamannavandinn var Alexis Tsipris forsætisráðherra Grikklands efst í huga enda eru Grikkir sú þjóð innan Evrópusambandsins sem hefur fundið hvað mest fyrir flóttamannastraumnum. „Við þurfum Evrópu sem ræður við fólksflutninga á árangursríkan og mannúðlegan hátt. Að minnsta kosti ætti Evrópa ekki að halda áfram að ganga í svefni í ranga átt,“ sagði Tsipris.
Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira