Innlent

Festu bílinn og straumurinn bar þá 25 metra

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Úr Þórsmörk.
Úr Þórsmörk. vísir/vilhelm
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út síðdegis í dag vegna jeppa sem var fastur í Steinholtsá á Þorsmerkurvegi.

Jeppanum, sem er á 35 tommu dekkjum, var ekið út í ána á vaði en straumurinn tók bílinn og bar hann um 25 metra niður ána og þar sem hann stöðvaðist náði vatnið vel upp á framrúðu jeppans.

Fram kemur í tilkynningu að mennirnir hafi haldið kyrru fyrir í bílnum þar til hjálp barst. Með aðstoð dráttarvélar úr Þórsmörk tókst að ná mönnunum tveimur á þurrt og jeppinn var síðan dregin úr ánni. Björgunarsveitamenn óku mönnunum, sem ekki var meint af vosbúðinni, til byggða á sjötta tímanum í dag.

Mikið vatn er í ám á þessu svæði og Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur ferðafólk til að sýna fulla aðgát og leggja ekki út í tvísýnu í þessum vatnavöxtum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×