Innlent

Líkamsárás við Álftanesveg

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Mikið var um ölvun í nótt ef marka má skeyti lögreglu.
Mikið var um ölvun í nótt ef marka má skeyti lögreglu. Vísir/Pjetur
Ráðist var á mann á Álftanesvegi í Garðabæ klukkan rúmlega eitt í nótt. Tveir eða þrír höfðu ráðist að manninum og stolið af honum veski, síma og fleiru. Maðurinn hlaut áverka á andliti og var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Árásarmennirnir eru ófundnir.

Nokkuð var um líkamsárásir í nótt samkvæmt skeyti frá lögreglu. Tveir menn voru slegnir í höfuðið í miðbænum í nótt og rotaðist annar þeirra. Gerendur eru ófundnir.

Þá var tilkynnt um líkamsárás í Breiðholti og er árásarmaðurinn í því tilfelli einnig ófundinn.

Í Vesturbæ var karlmaður handtekinn á þriðja tímanum í nótt vegna gruns um heimilisofbeldi og líkamsárás. Hann var vistaður í fangageymslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×