Innlent

Ólétt kona stungin til bana í útjaðri Kaupmannahafnar

Anton Egilsson skrifar
Lögregla hefur ekki haft hendur í hári morðingjans.
Lögregla hefur ekki haft hendur í hári morðingjans. Vísir
Kona var myrt í almenningsgarði í Herlev í útjaðri Kaupmannahafnar í gærkvöldi. Beið hún bana af völdum hnífsstungu.

Morðinginn gengur enn laus en lögregla lýsir nú eftir manni sem er grunaður um verknaðinn en vitni sáu mann aka í burtu frá garðinum um svipað leyti og morðið átti sér stað. Þá heyrði vitnið einnig í miklum öskrum frá konunni. Það er DR sem greinir frá þessu. 

Konan sem var 32 ára gömul var barnshafandi. Var hún úti að ganga með hund sinn þegar ráðist var að henni með þessum vofveiflegu afleiðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×