Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, boðaði Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, á sinn fund klukkan 11 í dag og veitti honum fyrstum færi á að mynda nýja ríkisstjórn.
Það gerði forsetinn í kjölfar samtals við forystufólk allra flokka sem fengu mann kjörinn í kosningunum á laugardag.
Ákvörðun Guðna helst í hendur við skoðun lesenda Vísis sem spurðir voru í gær hverjum þeir myndu veita umboðið væru þau í sporum forsetans.
Niðustöður könnunar Vísis voru á þá leið að flestir, eða 47% aðspurðra, töldu að Bjarni ætti að fá stjórnarmyndunarumboðið.
Næstur á eftir honum kom Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sem hlaut 30% atkvæða. Þriðji var Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, en 17% töldu að hann ætti fá stjórnarmyndunarumboðið.
Aðrir flokkar fengu minna eins og niðurstöðurnar hér að neðan bera með sér. Alls voru greidd um 5400 atkvæði.
Innlent