Ferguson: Klopp klikkaði í úrslitaleiknum Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. september 2016 07:30 Jürgen Klopp huggar James Milner eftir tapið í Basel. vísir/getty
Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Jürgen Klopp, kollegi hans hjá Liverpool, sé um að kenna fyrir tap Liverpool í úrslitaleik Evrópudeildarinnar síðasta vor. Liverpool var 1-0 yfir í hálfleik gegn spænska liðinu Sevilla sem skoraði svo þrjú mörk í seinni hálfleik og lyfti Evrópudeildarbikarnum þriðja árið í röð. Þrátt fyrir mistök Klopps finnst Ferguson að Þjóðverjinn sé á hárréttum stað. Ferguson fór yfir leikinn í skýrslu fyrir tækninefnd evrópska knattspyrnusambandsins en hann er yfir þeim hópi hjá UEFA. Skotinn segir að þráfylgni Klopp í pressu á boltann hafi á endanum kostað liðið titilinn. „Sevilla hafði ekki gaman að tæklingum Liverpool í fyrri hálfleik og vilja liðsins. En Sevilla kom með betra hugarfar inn í seinni hálfleikinn og skoraði strax sem breytti leiknum,“ segir Ferguson, en Sky Sports greinir frá. „Liverpool var orkulaust í seinni hálfleik og komst ekki að boltanum. Plássið sem skapaðist á miðjunni varð alltaf stærra. Aldrei stýrði ég liði sem gat pressað á boltann allt tímabilið.“ Ferguson er aftur á móti á þeirri skoðun að Klopp sé rétti maðurinn fyrir Liverpool en hann á bara eftir að gera Anfield að enn þá erfiðari stað að spila á þar sem hann smitar svo miklum krafti í annars frábæra stuðningsmenn liðsins. „Mér fannst alltaf erfitt að spila á Anfield því stuðningsmennirnir búa til svo frábæra stemningu sem hefur áhrif á móhtjerna og setur dómarana undir pressu,“ segir Sir Alex Ferguson.
Enski boltinn Mest lesið Albert verður ekki kallaður inn í íslenska hópinn Fótbolti Einkunnir Íslands gegn Wales: Varamaðurinn Logi maður leiksins eftir ótrúlega innkomu Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Wales 2-2 | Logi sem þarf að verða að báli Fótbolti Stefán Árni stríddi Tomma með paparassa myndbandi frá sumrinu Körfubolti Logi fær ekki seinna markið skráð á sig Fótbolti Valsmenn rufu fjörutíu marka múrinn Handbolti Hareide: „Við gerðum skelfileg mistök“ Fótbolti Stefán Teitur og Jón Dagur á leið í bann Fótbolti Twitter um leikinn: Haltu bara áfram að skína Logi Fótbolti „Við munum læra margt af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Sjá meira