Enski boltinn

Ekki auðvelt að segja nei við Mourinho

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mourinho og Varane eru þeir voru báðir hjá Real.
Mourinho og Varane eru þeir voru báðir hjá Real. vísir/getty
Jose Mourinho vildi fá franska varnarmanninn Raphael Varane til Man. Utd í sumar en Varane afþakkaði boðið.

Varane er samningsbundinn Real Madrid til 2020 en Man. Utd ætlaði engu að síður að reyna að kaupa hann ef hann vildi koma yfir til Old Trafford.

„Mér var sýndur mikill heiður með þessu enda er Man. Utd stórt félag. Ég og Real erum aftur á móti á sömu blaðsíðu og þá er þetta aldrei nein spurning,“ sagði Varane við Canal+.

„Mér hefur alltaf liðið vel í Madrid en það er ekki auðvelt að segja nei við Jose Mourinho. Ég þurfti að vega og meta þetta áður en ég gaf svar. Við erum menn og þurfum að taka ákvarðanir. Þannig er það bara.“

Mourinho gaf honum tækifæri hjá Real er hann var enn mjög ungur. Samband þeirra er því sterkt en samband Varane og núverandi þjálfara Real, Zinedine Zidane, virðist líka vera mjög gott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×