Lífið

Hversu oft stundar þú kynlíf?

Stefán Árni Pálsson skrifar
vísir/getty
Í gærkvöldi greindi vísir frá rannsókn sem gerð var í Indiana í Bandaríkjunum og tók hún mið á því hversu oft fólk ætti að stunda kynlíf miðað við aldur.

Fréttin vakti mikla athygli og höfðu lesendur Vísis mikla skoðun á málinu. Í rannsókninni kom fram að fólk á aldrinum 18-29 ætti að stunda kynlíf um 112 sinnum á ári, eða um tvisvar á viku. Aftur á móti er sagt að fólk á aldrinum 30-39 eigi að stunda kynlíf 86 sinnum á ári, eða um 1,6 sinnum í hverri viku.

Sjá einnig: Svona oft átt þú að stunda kynlíf miðað við aldur

Tölurnar lækka alltaf eftir því sem fólk eldist og er mælt með að fólk á aldrinum 40-49 ára stundi kynlíf 69 sinnum á ári.

Nú spyrjum við okkar lesendur, hversu oft í viku stundið þið kynlíf? Hér að neðan er hægt að svara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×