Enski boltinn

Tölfræðin ekki með Middlesbrough gegn Chelsea

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einn leikur er í ensku úrvalsdeildinni í dag og er það viðureign Middlesbrough og Chelsea.

Chelsea hefur unnið fimm leiki í röð núna og er liðið búið að rjúka upp töfluna.

Middlesbrough náði í dramatískt stig gegn Manchester City rétt fyrir landsleikjahléið og kemur liðið jafnvel með smá sjálfstraust í leikinn í dag.

Liðið hefur aftur á móti tapað síðustu fimm leikjunum í ensku úrvalsdeildinni gegn Chelsea. Leikurinn hefst klukkan 16.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×