Karl Steinar: Ég fylgdi öllum reglum í mínu starfi Ólöf Skaftadóttir skrifar 9. janúar 2016 07:00 Karl Steinar segir greinilegt að fleiri ábendingar hafi borist um mál lögreglufulltrúans eftir að Karl hætti sem yfirmaður fíkniefnadeildar. Fréttablaðið/Ernir
Karl Steinar Valsson, fyrrverandi yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglu segist hafa útbúið greinargerð um mál lögreglufulltrúa sem er grunaður um spillingu sem hann sendi áfram á sína yfirmenn í janúar 2012, þegar hann fékk fyrst ábendingar um málið. Ákvarðanir um formlega rannsókn mála hafi ekki verið hans að taka, heldur þáverandi yfirmanna Karls, Friðriks Smára Björgvinssonar, sem nú gegnir stöðu yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, og Jóns H.B. Snorrasonar, sem gegnir stöðu saksóknara og varalögreglustjóra hjá sama embætti. „Þessar ásakanir á hendur mér eiga ekki við rök að styðjast. Það hefði aldrei verið í mínum verkahring hjá lögreglunni að hefja rannsóknir á mínum næstu undirmönnum. Sú ályktun sem dregin er, að ég hafi með einhverjum hætti vikið frá formlegum verkferlum í þessu máli eða öðrum málum sem upp komu í minni tíð, er einfaldlega röng,“ segir Karl Steinar Valsson, sem gegndi stöðu yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglu frá 2007 til 2014. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, og eins og fram kom í gær, var Karl Steinar endurtekið upplýstur um grunsemdir í garð vel tengds lögreglufulltrúa hjá deildinni. Maðurinn er enn við störf hjá lögreglu og hefur aldrei verið vikið frá störfum. Hann hefur hins vegar þrisvar verið færður á milli deilda undanfarna mánuði. „Ég man eftir tilvikum um svona ásakanir í garð lögreglumanna sem upp komu í minni tíð og ég kannast við þetta tilvik. Síðan virðist málið koma upp aftur, eftir að ég hætti störfum. Það mál og það ferli þekki ég ekki neitt og er algjörlega ótengdur því. Mér finnst ég ekki hafa notið sannmælis í fréttaflutningi af málinu.“Útbjó greinargerð um máliðVísir hefur fjallað ítarlega um mál lögreglufulltrúans undanfarnar vikur og mánuði. Engin formleg rannsókn á málinu var sett af stað á sínum tíma þegar ásakanir í hans garð komu fyrst upp, í tíð Karls Steinars. Síðan hafi fleiri ásakanir komið upp á hendur lögreglufulltrúanum, eftir að Karl Steinar hætti störfum.Sjá einnig: Starfsmanni hjá lögreglu vikið úr störfum sínum vegna gruns um að leka upplýsingum Karl segir rannsóknir á undirmönnum sínum aldrei hafa verið í sínum verkahring. Sjálfur hafi hann útbúið greinargerð um þær ábendingar sem honum bárust í janúar 2012 og komið henni áfram á sína yfirmenn. Nú sé kominn nýr yfirmaður fíkniefnadeildar og hafi verið um nokkurt skeið, eða síðan 2014. „Sá verkferill sem þarna fór í gang var hefðbundinn. Ákveðin grunnskoðun fer í gang, sem ég sá um að gera sjálfur. Þann gjörning er ekki hægt að kalla rannsókn, heldur er það almenn skoðun þeirra gagna sem eru fyrirliggjandi á þeim tíma. Út frá því útbjó ég greinargerð sem ég svo sendi áfram til minna yfirmanna. Ég fylgdi öllum reglum.“Jón H. Snorrason.Árið 2012 voru yfirmenn Karls Steinars, Friðrik Smári Björgvinsson, sem gegnir stöðu yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, og Jón H.B. Snorrason, sem gegnir stöðu saksóknara og varalögreglustjóra hjá sama embætti. Þeir báru, þegar þarna var komið sögu, ábyrgð á því að koma ábendingum áfram til ríkissaksóknara sem hefði þá farið fram á formlega rannsókn á málinu, ef tilefni þætti til. Hvorki náðist í Friðrik Smára né Jón H.B. þegar leitað var eftir viðbrögðum þeirra. „Það er ekki rétt að ég sem yfirmaður sé að rannsaka mína eigin menn. Það gengur ekki upp. Ég hefði aldrei verið sá sem framkvæmdi slíka rannsókn.“ Karl Steinar gegnir nú stöðu tengifulltrúa Íslands hjá Evrópsku lögregluskrifstofunni, Europol, og er staddur í Hollandi, þar sem hann býr og starfar.Sjá einnig: Vill ekki að lögreglan rannsaki lögreglumenn: „Ótækt að koma mönnum í þessa aðstöðuFréttablaðið hefur heimidir fyrir því að samstarf Karl Steinars og lögreglufulltrúans hafi verið mjög náið.Vísir/ErnirEkki mitt að rannsakaKarl Steinar kannast við mál lögreglufulltrúans sem vísað er til, eins og fram kom að ofan. „Ég hafði enga skoðun á því hvort ætti að vísa þessu máli áfram til ríkissaksóknara á sínum tíma. Í svona tilfelli er ég hreinlega of nálægur starfsmönnunum til þess að fara að taka afstöðu til þess hvort eigi að beita agaviðurlögum innan stofnunarinnar, eða hvort eigi að beita öðrum viðurlögum. Ég get ekki tekið formlega afstöðu til þeirra ásakana sem koma fram. Hvort formleg rannsókn hefði átt að fara fram, ég bara get ekki svarað fyrir það. Enda skiptir mat mitt á því hvort tilefni sé til rannsóknar nánast engu máli. Það er annarra að taka þá ákvörðun, minna yfirmanna á þessum tíma.“ Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur sagst ekki geta tjáð sig um málið.Vildi einbeita sér að vinnunniSamkvæmt heimildum Fréttablaðsins fullyrti Karl Steinar á fundi með undirmönnum sínum að rannsókn á málinu hefði farið fram og að enginn fótur væri fyrir ásökununum á hendur lögreglufulltrúanum á sínum tíma. „Ég hélt fund vegna málsins. Ég man eftir því. Þar skýrði ég stöðu mála eins og hún blasti við þá, skýrði frá því að greinargerð hefði farið frá mér til yfirstjórnar sem tæki frekari afstöðu. Nákvæmlega hvaða orðalag ég notaði, get ég ekki munað, þó ég sé þokkalega minnugur maður. Ég minnist þess að hafa sagt mínum mönnum að málið væri úr okkar höndum. Við ættum að einbeita okkur að því sem við værum ráðin til þess að gera, sem væri að vinna vinnuna okkar.“Samskiptin fyrst og fremst fagleg Samkvæmt heimildum átti Karl Steinar í góðu sambandi við lögreglufulltrúann. „Ég lít á okkar samskipti sem fyrst og fremst fagleg. Við unnum saman í nokkur ár. Hann er ákaflega reyndur og góður rannsóknarlögreglumaður. Samskipti mín við hann voru bara eins og við aðra starfsmenn, vinaleg og fagleg.“ Hann segir hlutverk lögreglufulltrúans sem um ræðir undir sinni stjórn hafa fyrst og fremst verið samskipti við brotamenn, til upplýsingaöflunar. „Það er kannski eitthvað sem hefur ekki komið fram. Við höfum heimild samkvæmt lögum til þess að eiga í slíkum samskiptum. Af því tilefni er kannski ekkert óeðlilegt að stundum komi ábendingar um að hann hafi sést á tali við einhverja brotamenn. Það var hans hlutverk, eftir allt saman. Ég þekki ekki til þeirra upplýsinga eða gagna sem liggja fyrir í þessu máli núna, en það er haldið utan um öll samskipti lögreglu í svona málum. Slík gögn eiga öll að vera til.“Engar ábendingar borist til Aldísar Sú sem tók við af Karli Steinari heitir Aldís Hilmarsdóttir og hefur gegnt stöðu yfirmanns fíkniefnadeildar síðan 15. apríl 2014. Hún hefur því gegnt stöðu yfirmanns deildarinnar í tæplega tvö ár. Aldís segir engar formlegar ábendingar hafa borist til sín um meint misferli lögreglufulltrúans, þess sem þrisvar hefur verið færður til í starfi, síðan hún tók við starfinu. „En ég get auðvitað ekki svarað fyrir aðra en mig. Ég tel ekki slúðursögur með,“ segir Aldís. „Ég veit hinsvegar til þess að lögreglufulltrúinn sjálfur hefur krafist þess að slúðursögur sem um hann ganga verði skoðaðar. Það getur vel verið að einhver slík skoðun hafi farið fram, en það er ekki af mér vitandi.“Þrálátur orðrómur hefur verið uppi innan lögreglunnar um leka úr röðum fíkniefnadeildar.Vísir/GVALögreglufulltrúinn þrisvar færður til í starfiÍ gær kom fram að hópur lögreglumanna, alls níu sem er meirihluti þeirra sem starfa við rannsóknir á fíkniefnamálum, hefðu skrifað núverandi yfirmönnum lögreglunnar bréf á vormánuðum þar sem þau lýstu yfir vantrausti á lögreglufulltrúann sem um ræðir og starfaði við fíkniefnadeild lögreglunnar. Bréfið hafi orðið til þess að maðurinn var færður úr starfi. Lögreglufulltrúinn var fyrst færður í deild tengda fíkniefnarannsóknum en heimildir herma að hann hafi svo verið færður í deild sem annist símhlustanir fyrir öll lögreglulið í landinu. Síðan hefur hann verið færður í þriðja skiptið á nokkurra mánaða tímabili og starfar nú í deild sem tengist ekki rannsóknum á fíkniefnamálum.Kvartanirnar leiddu til tilfærslunnarÍ fréttum RÚV í gær var því haldið fram, eftir heimildum, að tilfærsla lögreglufulltrúans hefði komið til eftir að fulltrúinn hefði sjálfur óskað eftir því að hans mál væru skoðuð. Fréttablaðið og Vísir standa við sinn fréttaflutning af málinu að tilfærsla hans í starfi, þegar hann er færður úr fíkniefnadeild, hafi verið sökum þess að meirihluti deildarinnar taldi sig ekki geta starfað með hann innanborðs. Eftir að hafa ekki fengið nein viðbrögð við umkvörtunum sínum hjá Friðriki Smára Björgvinssyni fór hópurinn framhjá yfirmanni sínum, til Sigríðar Bjarkar. Þá fyrst var á einhvern hátt tekið á málinu og var hann færður til í starfi. Vel má vera að fulltrúinn hafi fullyrt að hann hefði ekkert að fela og hvatt til þess að hans mál yrðu skoðuð. Það var þó ekki tilefni þess að hann var færður til.
Leki og spilling í lögreglu Tengdar fréttir Leki í röðum lögreglu: Lögreglumaðurinn færður í símhlustanir Urgur er í röðum lögreglu vegna ákvörðunarinnar í ljósi þess um hvað mál lögreglumannsins snýst. Ákvörðunin sé með ólíkindum. 31. desember 2015 11:45 Grunaður um leka: Gegndi yfirmannsstöðu hjá upplýsinga- og fíkniefnadeild á sama tíma Afar óeðlilegt er að sami maður gegni báðum stöðum að sögn yfirmanns í dönsku lögreglunni. 21. desember 2015 11:30 Þrálátur orðrómur um leka vakti grun Grunur leikur á að lögreglumaður hafi fengið greitt fyrir upplýsingar til brotahópa. "Það getur hafa átt sér stað þvingun sem enginn veit af,“ segir lögreglustjóri og minnir á að málið sé enn í rannsókn. 7. janúar 2016 05:00 Lögreglufulltrúinn sem samstarfsmenn efast um stýrði tálbeituaðgerðinni Tálbeituaðgerð lögreglu við Hótel Frón lauk á óvæntan hátt þegar sendisveinn var handtekinn þegar allt virtist vera á áætlun. 8. janúar 2016 11:00 Starfsmanni hjá lögreglu vikið frá störfum sínum vegna gruns um að leka upplýsingum Umræddur starfsmaður meðal annars í aðstöðu til þess að hafa áhrif á rannsóknir stórra fíkniefnamála. 14. desember 2015 10:45 Meirihluti fíkniefnadeildar gerði í sameiningu alvarlegar athugasemdir við störf lögreglufulltrúans Níu starfsmenn fíkniefnadeildar lögreglu lýstu yfir vantrausti á hendur samstarfsmanni sínum við yfirmann á liðnu ári. Um enn eitt dæmið var að ræða þar sem efasemdir voru uppi um heilindi hans í starfi. 8. janúar 2016 18:30 Mál lögreglumannsins á sér aðdraganda Reyndur fíkniefnalögreglumaður grunaður um alvarleg brot í starfi situr í einangrun á Litla Hrauni. Mál hans hefur átt sér nokkurn aðdraganda og fíkniefnadeild hefur verið undir smásjánni um nokkurn tíma. 6. janúar 2016 20:00 Spilling í lögreglunni: Hættunni boðið heim ár eftir ár Tveir reyndir fíkniefnalögreglumenn eru grunaðir um græsku. Aldrei hefur maður verið fundinn sekur af mútuþægni í röðum lögreglu. Skortur á eftirliti gæti verið ástæða þess. 7. janúar 2016 14:30 Lögregluforingi segir fjölmiðla fara offari Ómar Smári Ármannsson vandar fjölmiðlum ekki kveðjurnar og telur umfjöllun þeirra litast af minnimáttarkennd gagnvart lögreglunni. 8. janúar 2016 10:55 Tjá sig ekki um ástæður þess að lögreglumaðurinn var færður til í starfi Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, svarar engum spurningum vegna lögreglumanns á höfuðborgarsvæðinu sem var færður til í starfi vegna gruns um leka á upplýsingum. 14. desember 2015 15:00 Lögreglumaðurinn sem var færður til í starfi gegndi stöðu yfirmanns hjá LRH Samkvæmt heimildum Vísis var málinu ekki vísað til ríkissaksóknara þegar ástæða þótti til að færa yfirmanninn til í starfi. 16. desember 2015 11:15 Fullyrti að rannsókn hefði farið fram Karl Steinar Valsson tjáði starfsmönnum fíkniefnadeildar að alvarlega ásakanir á hendur lögreglumanni í deildinni hefðu verið rannsakaðar og enginn fótur reynst fyrir þeim. Málið var aldrei formlega rannsakað. 8. janúar 2016 07:00 Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Erlent Fleiri fréttir Veðmál barna og verslunarmiðstöð í Vogum Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Sjá meira
Leki í röðum lögreglu: Lögreglumaðurinn færður í símhlustanir Urgur er í röðum lögreglu vegna ákvörðunarinnar í ljósi þess um hvað mál lögreglumannsins snýst. Ákvörðunin sé með ólíkindum. 31. desember 2015 11:45
Grunaður um leka: Gegndi yfirmannsstöðu hjá upplýsinga- og fíkniefnadeild á sama tíma Afar óeðlilegt er að sami maður gegni báðum stöðum að sögn yfirmanns í dönsku lögreglunni. 21. desember 2015 11:30
Þrálátur orðrómur um leka vakti grun Grunur leikur á að lögreglumaður hafi fengið greitt fyrir upplýsingar til brotahópa. "Það getur hafa átt sér stað þvingun sem enginn veit af,“ segir lögreglustjóri og minnir á að málið sé enn í rannsókn. 7. janúar 2016 05:00
Lögreglufulltrúinn sem samstarfsmenn efast um stýrði tálbeituaðgerðinni Tálbeituaðgerð lögreglu við Hótel Frón lauk á óvæntan hátt þegar sendisveinn var handtekinn þegar allt virtist vera á áætlun. 8. janúar 2016 11:00
Starfsmanni hjá lögreglu vikið frá störfum sínum vegna gruns um að leka upplýsingum Umræddur starfsmaður meðal annars í aðstöðu til þess að hafa áhrif á rannsóknir stórra fíkniefnamála. 14. desember 2015 10:45
Meirihluti fíkniefnadeildar gerði í sameiningu alvarlegar athugasemdir við störf lögreglufulltrúans Níu starfsmenn fíkniefnadeildar lögreglu lýstu yfir vantrausti á hendur samstarfsmanni sínum við yfirmann á liðnu ári. Um enn eitt dæmið var að ræða þar sem efasemdir voru uppi um heilindi hans í starfi. 8. janúar 2016 18:30
Mál lögreglumannsins á sér aðdraganda Reyndur fíkniefnalögreglumaður grunaður um alvarleg brot í starfi situr í einangrun á Litla Hrauni. Mál hans hefur átt sér nokkurn aðdraganda og fíkniefnadeild hefur verið undir smásjánni um nokkurn tíma. 6. janúar 2016 20:00
Spilling í lögreglunni: Hættunni boðið heim ár eftir ár Tveir reyndir fíkniefnalögreglumenn eru grunaðir um græsku. Aldrei hefur maður verið fundinn sekur af mútuþægni í röðum lögreglu. Skortur á eftirliti gæti verið ástæða þess. 7. janúar 2016 14:30
Lögregluforingi segir fjölmiðla fara offari Ómar Smári Ármannsson vandar fjölmiðlum ekki kveðjurnar og telur umfjöllun þeirra litast af minnimáttarkennd gagnvart lögreglunni. 8. janúar 2016 10:55
Tjá sig ekki um ástæður þess að lögreglumaðurinn var færður til í starfi Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, svarar engum spurningum vegna lögreglumanns á höfuðborgarsvæðinu sem var færður til í starfi vegna gruns um leka á upplýsingum. 14. desember 2015 15:00
Lögreglumaðurinn sem var færður til í starfi gegndi stöðu yfirmanns hjá LRH Samkvæmt heimildum Vísis var málinu ekki vísað til ríkissaksóknara þegar ástæða þótti til að færa yfirmanninn til í starfi. 16. desember 2015 11:15
Fullyrti að rannsókn hefði farið fram Karl Steinar Valsson tjáði starfsmönnum fíkniefnadeildar að alvarlega ásakanir á hendur lögreglumanni í deildinni hefðu verið rannsakaðar og enginn fótur reynst fyrir þeim. Málið var aldrei formlega rannsakað. 8. janúar 2016 07:00