Lífið

Nýársspá Siggu Kling – Tvíburi: Von á stöðuhækkun í lífinu

Elsku tvíburinn minn. Þú ert búinn að vera svo duglegur og harka af þér allt amstrið sem er búið að vera í kringum þig.

Þú ert svo mikið jólabarn og vilt að öllum líði vel, svo vel að þú átt það til að detta í smá þunga yfir þetta tímabil og það væri stundum best ef þú gætir lagst í híði og sofið eins og Þyrnirós fyrstu vikuna í janúar því þú ert svo úrvinda. En svo bankar staðfestan og krafturinn upp á og þá líður þér þúsundfalt betur.

Skipulagning og að standa með sjálfum sér færir þér einhvers konar stöðuhækkun í lífinu og þú átt eftir að líta svo ljómandi vel út að fólk mun taka eftir því. Þetta byrjar að gerast strax í janúar og sjálfstraustið eykst í kjölfarið. Ef þú ert á lausu þá hefur þú sko úr nógu að velja. Það er einhver afbrýðisemi í kringum þetta tímabil, hún er svo afskaplega leiðinleg og þú skalt alls ekki láta hana stjórna neinu.

2016 er ár mikillar ástar, fjölskyldu og vináttu. Í kringum þig leynast margar áskoranir og þú tekur einhverja áhættu. Ekki hafa neinn móral, elsku tvíburi, því alheimurinn og englarnir standa með þér.

Þú kemst að raun um það að fólki, sem þú hélst að væri illa við þig, er það alls ekki og þér býðst verkefni sem þú verður mjög montinn með. Sjálfstæði þitt er að eflast og þú verður sannfærðari um eigin dug og vittu til, það er það sem þarf til að gera næstu mánuði svo dásamlega.

Gleðilegt nýtt ár elsku tvíburi! Þín, Sigga Kling

Frægir tvíburar: Örn Árnason leikari, Óli Geir Jónsson plötusnúður, Bjarni töframaður, Hrund Þórsdóttir fréttakona, Össur Skarphéðinsson húmoristi, Johnny Depp leikari, Páll Magnússon fjölmiðlamaður, Kjartan Atli Kjartansson lífsspekúlant, Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Andri Freyr útvarpsmaður og Lýðveldið Ísland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.