Ekki láta aðra smita þig Ari Þórðarson skrifar 10. febrúar 2016 07:00 Allir sem reka fyrirtæki vita að fjarvistir starfsmanna vegna veikinda skapa vandræði, tefja verk og hafa því afar neikvæð áhrif á rekstur fyrirtækjanna. Sama gildir um börn sem veikjast í skólanum, enda þurfa foreldrar gjarnan að vera frá vinnu til að sinna veikum börnum. Til verður keðjuverkun þar sem álag á þá starfsmenn sem eru við hestaheilsu eykst vegna fjarveru samstarfsfólks. Það sama fólk á á hættu að verða veikt vegna mögulegs smits frá öðrum starfsmönnum. Margir vinnuveitendur gera sitt til að reyna að draga úr veikindum starfsmanna, til dæmis með því að bjóða upp á flensusprautur, hvetja til handþvotta og fleira. Fáir átta sig á mikilvægi ræstinga á vinnustöðum í þessu samhengi. Það er augljóst heilbrigðismál að þrífa í kringum sig. Með reglulegum ræstingum með réttum hreinsiefnum og aðferðum má draga úr sýklaflórunni sem herjar á ónæmiskerfið. Hvort sem það er á vinnustaðnum eða í skólanum ættu stjórnendur að leggja ríka áherslu á reglulegar ræstingar sem hluta af áherslu á heilbrigði starfsmanna.Um 44% mættu veik til vinnu Það er ekki auðvelt að sjá umfang vandamálsins, sem gæti verið hluti af skýringunni á því hversu mikið kæruleysi virðist ríkja hvað gæði ræstinga varðar. Í kjarakönnun BHM sem gerð var 2014 kom fram að 44,3% þeirra sem þátt tóku í könnuninni höfðu mætt veikir til vinnu á 12 mánaða tímabili. Litlu færri, eða 43,9%, höfðu verið frá vinnu vegna eigin veikinda eða veikinda barna án þess að vinna heima. Nú er óvarlegt að áætla að hlutfallið sé eins í öllum geirum samfélagsins. En sé það eitthvað í líkingu við þetta þýðir það að af tæplega 190 þúsund vinnandi manns eru um 83 þúsund þeirra frá vinnu í einn eða fleiri daga á hverju ári. Það þýðir líka að svipaður fjöldi mætir veikur í vinnuna, með tilheyrandi smithættu, samanber áðurnefnda könnun. Bakteríur eiga greiða leið á milli fólks, hvort sem það er á leikskólanum, í kaffiteríunni eða á salerninu. Hreinlæti er augljóst heilbrigðismál enda ljóst að veikindi starfsfólks sem mætir veikt til vinnu getur skapað mikla smithættu. Sé hreinlæti ábótavant hefur það beinar afleiðingar á fjarveru starfsmanna. Þessi keðjuverkun dregur úr framleiðni fyrirtækja og dregur atvinnulífið niður.Skammsýnin ræður för Þá kemur að þætti stjórnenda sem sjá um kaup á ræstingu í skólum og öðrum vinnustöðum. Þar er víða pottur brotinn. Margir leggja ofur áherslu á lágt verð en láta sig litlu skipta hvernig gæði ræstinganna eru svo framarlega sem einhver lágmarksskilyrði eru uppfyllt. Þarna ræður skammsýni alltof oft för enda geta krónur sem fara í að bæta ræstingu komið margfalt til baka ef þær draga úr veikindum þeirra sem starfa í því umhverfi sem ræst er, hvort sem það eru starfsmenn á vinnustað eða börn í leikskólum, grunnskólum eða á öðrum skólastigum. Það sama gildir um ræstingar og matarinnkaup. Við kaupum ekki alltaf ódýrasta matinn sem í boði er, nema við séum illa stödd fjárhagslega. Við skoðum innihaldið og veljum hollan og góðan mat frekar en ódýra og lélegri vöru. Það gerum við heilsu okkar vegna. Á sama hátt og við horfum á gæði matarins sem við borðum ættum við að horfa á gæði ræstinga í umhverfi okkar.Skaðleg stefna Við þurfum að breyta því viðhorfi sem ríkjandi er í samfélaginu til ræstinga og horfa á gæði ekki síður en verð. Þannig geta stjórnendur fyrirtækja bætt ræstingu og dregið úr fjarvistum vegna veikinda. Það er skaðleg stefna að kaupa alltaf ódýrustu ræstingu sem völ er á, án tillits til gæða. Þeirri skaðlegu stefnu þarf að breyta. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Réttlæti Hallgríms Helgasonar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Hversu góð eru laun lækna? Teitur Ari Theodórsson Skoðun Ég er alveg nógu verðmæt eins og ég er! Ragnheiður Stephensen Skoðun „Ekki í mínum bakgarði, TAKK!“ Davíð Bergmann Skoðun Af hverju ætti ungt fólk að kjósa Sjálfstæðisflokkinn? Anton Berg Sævarsson Skoðun Atvinnubótastarfsemi framboða DIljá Mist Einarsdóttir Skoðun Þarf alltaf að vera svín 2024 Darri Gunnarsson,Rósa Líf Darradóttir Skoðun Þess vegna talar ChatGPT íslensku Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Er Kristófer talsmaður skyndilegrar skattheimtu á ferðaþjónustu? Ingvar Örn Ingvarsson Skoðun xD frelsi til að halda ungu fólki niðri Yngvi Sighvatsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvers virði er líf kvenna? Brynhildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Verklausi milljónakennarinn Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Að mæta ástandinu Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera svín 2024 Darri Gunnarsson,Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Þrælar bankanna, lykiltölur Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Þriðji orkupakkinn: Almannahagsmunir á krossgötum Aron H. Steinsson skrifar Skoðun Eftir miklar umræður, fréttir og mótmæli síðustu daga hef ég verið hugsi Anna M. Hoffmann Guðgeirsdóttir skrifar Skoðun Aðgerðir í húsnæðismálum strax! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun xD frelsi til að halda ungu fólki niðri Yngvi Sighvatsson skrifar Skoðun Afstöðuleysi Íslands óþolandi – Stöndum með vistkerfum sjávar Andrés Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þess vegna talar ChatGPT íslensku Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Uppbygging heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni: Er það á stefnuskránni fyrir þessar kosningar? Hildigunnur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Gleðilega töfrandi kosningabaráttu Jón Þór Kristjánsson skrifar Skoðun Samfylkingin óspjallaða Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Árás á fátækasta fólkið í borginni Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Fjármögnum háskólana til jafns við hin Norðurlöndin Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Af hverju ætti ungt fólk að kjósa Sjálfstæðisflokkinn? Anton Berg Sævarsson skrifar Skoðun Mennska eða harka í málefnum hælisleitenda Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun „Ekki í mínum bakgarði, TAKK!“ Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er Kristófer talsmaður skyndilegrar skattheimtu á ferðaþjónustu? Ingvar Örn Ingvarsson skrifar Skoðun Börnin okkar á biðlistunum Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Leiðtogar í grænum umskiptum Nótt Thorberg skrifar Skoðun „Samningana í gildi“ Pjetur St. Arason skrifar Skoðun Ég er alveg nógu verðmæt eins og ég er! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Atvinnubótastarfsemi framboða DIljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Hversu góð eru laun lækna? Teitur Ari Theodórsson skrifar Skoðun Nægjusamur nóvember – Að endurstilla neyslumenningu okkar Guðrún Schmidt skrifar Skoðun Stjórnsýsla eða pólitík? Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Réttlæti Hallgríms Helgasonar Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Misrétti, vonleysi og baráttan við að halda í bjartsýnina Ari Orrason skrifar Sjá meira
Skoðun Eftir miklar umræður, fréttir og mótmæli síðustu daga hef ég verið hugsi Anna M. Hoffmann Guðgeirsdóttir skrifar
Skoðun Uppbygging heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni: Er það á stefnuskránni fyrir þessar kosningar? Hildigunnur Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Er Kristófer talsmaður skyndilegrar skattheimtu á ferðaþjónustu? Ingvar Örn Ingvarsson skrifar