Lífið

Febrúarspá Siggu Kling – Bogmaður: Styttra í mark en þú heldur

Elsku besti bogmaður. Það getur verið erfitt að vera í langhlaupi þegar maður sér ekki hvar það endar. Þá missir maður aðeins kraftinn sinn en þú þarft ekkert að óttast því þú ert á mjög góðum hraða. Þú átt ekkert að fara að hvíla þig því það er styttra í mark en þú heldur.

Það streyma til þín ábendingar því að fólk vill þér svo vel, en núna þarft þú að hlusta á þinn eigin innri kraft. Vittu til, það mun einfalda allt.

Þegar þú sérð að svarið sem þig vantaði að lífsgátunni er beint fyrir framan þig er eins og þú slappir af og náir þinni dásamlegu orku sem Júpíter á eftir að láta streyma inn í þetta ár.

Það er mikið afl í hugmyndum þínum en hugmyndir virka ekki nema þú framkvæmir þær. Klára og gera!

Þú átt að sleppa öryggisnetinu þínu og hafa í huga að þú ert eins og kötturinn, hefur níu líf og munt alltaf lenda á löppunum.

Öryggisnetið getur oft hindrað hamingju þína svo nú er bara að sleppa! Þú getur verið stoltur af þeim ákvörðunum sem þú hefur tekið undanfarið þó þær hafi ekki verið auðveldar og febrúar kemur með útkomuna sem þú ert búinn að vera að bíða eftir og færir þér skilninginn á því hvers vegna hlutirnir hafa verið í dálitlum ólgusjó.

Þetta skilar þér góðu gengi á næstu mánuðum og gullnu tækifæri sem byggir algjörlega á þér elsku bogmaðurinn minn!

Þín, Sigga Kling

Frægir bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collecton, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur og Hemmi, hársnillingur á Módus, Loísa hönnuður hjá Kjólar og konfekt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.