Noregur komst í gærkvöldi í undanúrslit á EM í handbolta í fyrsta sinn eftir glæsilegan sigur á meistaraefnum Frakklands, 29-24. Noregur tapaði fyrsta leik mótsins gegn strákunum okkar með einu marki, en hafa síðan unnið lið á borð við Króatíu, Pólland og Frakkland.
Ekki nóg með að Norðmenn komust í fyrsta sinn í undanúrslit heldur gerðu þeir sér lítið fyrir og náðu efsta sæti milliriðils eitt.
Þegar Noregur spilaði á móti Frakklandi í gær héldu flestir að um hreinan úrslitaleik fyrir Norðmennina væri að ræða því Frakkar gátu komist yfir þá með sigri.
Þá hefði Noregur þurft að treysta á Króata sem reyndar tóku sig til og niðurlægðu gestgjafa Póllands. Sæti Norðmanna var því alltaf tryggt. En það vissu Daniel Höglund og Kristian Kjelling sem lýstu leik Noregs og Frakklands á TV3 í Noregi ekki.
Höglund var algjörlega sturlaður af gleði undir lok leiksins og minnti svo sannarlega á íslenska íþróttafréttamanninn og gleðigjafann Adolf Inga Erlingsson þegar Ísland komst í úrslitin á Ólympíuleikunum í Peking.
Kjelling, sem er fyrrverandi leikmaður norska liðsins, virtist eiginlega bara í áfalli og kom vart upp orði. Ekkert sérstakt fyrir sérfræðing í beinni útsendingu.
Hér að neðan má fara með norsku lýsendunum í gegnum síðustu mínútur leiksins í gær.
Norski lýsandinn tók Adolf Inga á þetta þegar Noregur komst í undanúrslit
Tengdar fréttir
Ótrúlegur sigur Króata kom þeim í undanúrslit
Hvorki stjörnum prýtt lið Frakka né gestgjafar Póllands komust í undanúrslitin á EM.
Lazarov markahæstur á EM
Makedóninn Kiril Lazarov er markahæsti leikmaður EM eftir milliriðlana en ekki er víst að hann nái samt markakóngstitlinum á endanum.
Frakkar með næstum því þúsund fleiri landsleiki en Norðmenn
Noregur og Frakkar mætast í kvöld í úrslitaleik um sæti í undanúrslitum á Evrópumótinu í handbolta í Póllandi en liðin eru í harðri baráttu við heimamenn um tvö laus sæti í milliriðli eitt.