Eftir tvær vikur mun Carter funda með öðrum varnarmálaráðherrum bandalagsins og segist hann ætla að ýta á þá sem hafi lagt lítið af mörkum til að gera meira.
Auk þess sagði Carter að nauðsynlegt væri að hertaka Raqqa og Mosul. Til þess vill ráðherrann virkja frekar Kúrda og íraskar sveitir. Þó segir hann að líklega muni Bandaríkin fjölga hermönnum á svæðinu. Lykilatriði sé þó að heimamenn brjóti ISIS á bak aftur að mestu leyti sjálfir.
Nú þegar notast Bandaríkin við loftárásir og skyndiárásir til að loka á birgða- og mannflutninga á milli Raqqa og Mosul. Þannig hafi þeir í raun skipt yfirráðasvæði ISIS í tvennt.