Bíó og sjónvarp

Will Smith ætlar ekki á Óskarinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Will Smith.
Will Smith. Vísir/Getty
Leikarinn Will Smith hefur ákveðið að fara ekki á Óskarsverðlaunahátíðina í næsta mánuði. Það gerir hann til að mótmæla því að í annað árið í röð voru eingöngu hvítir leikarar tilnefndir til verðlauna. Eiginkona hans Jada Pinkett Smith, hefur áður sagt að hún muni sniðganga hátíðina.

„Konan mín ætlar ekki. Það yrði vandræðalegt ef ég myndi mæta með Charlize Theron,“ sagði leikarinn í þættinum Good Morning America. „Við ræddum þetta og okkur þætti óþægilegt að standa þarna og láta eins og þetta sé í lagi.“

Samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar töldu margir að Smith yrði tilnefndur til verðlauna fyrir leik sinn í myndinni Concussion. Hann segir þó að hann hafi ekki tekið ákvörðunina vegna þess.

„Málið snýst um börn sem æla að setjast niður og horfa á hátíðina en enginn mun koma fram fyrir þeirra hönd.“

Meðal þeirra sem hafa ákveðið að sniðganga hátíðina eru Jada Pinkett Smith og Spike Lee. Framkvæmdastjóri Akademíunnar, sem velur verðlaunahafa, hefur heitið því að gera umfangsmiklar breytingar á þeim hópi sem kýs verðlaunahafa. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×